Nágrannakærleikur í arkitektúr samanber náungakærleikur Halldóra Arnardóttir skrifar 25. maí 2026 09:02 Að heiman... Við erum á göngu í ótiltekinni borg í ótilteknu landi. Við göngum um hverfi hennar og sjáum að þau eru frá ýmsum tímum og byggja út frá mismunandi hugmyndafræði. Sum þeirra skipulögð í heild sinni á ákveðnu tímabili. Önnur hafa byggst upp í rás tímans. Húsin eru ólík, sem er í raun eðlilegt því þjóðfélagið hefur breyst í gegnum aldirnar og húsin endurspegla nýjar þarfir þeirra sem þar búa. Það er einhver blær yfir húsunum sem sameinar, menningararfur sem brýst í gegn, óháð aldri þeirra. Við dokum við til að reyna að átta okkur á þessari tilfinningu. Jú, stærð þeirra og lögun virðast taka mið af birtu og sólarátt allt eftir notkun herbergjanna að baki. Einingarnar gera ráð fyrir fjölbreyttu fjölskyldumynstri, líka einbúum. Auðséð er að dýpt húsanna hleypir inn náttúrulegri birtu og loftgæði eru höfð í fyrirrúmi. Engir dimmir húsagarðar sem sólin nær ekki til og veldur að smáblóm fái ekki að vaxa. Hér eru líka sameiginlegir garðar sem ýta undir félagsleg samskipti íbúanna með fjölbreyttum gróðri og hreyfanlegum borðum, stólum og bekkjum. Við höldum áfram og erum komin niður í miðbæ þar sem verslun, verkstæði og íbúðir fara saman. Hér er annars konar fjölbreytileiki. Svo virðist sem stjórnvöld hafi beitt sér fyrir grunnþjónustu við íbúanna jafnt á við ferðamenn. En hvað með húsin sjálf? Þau eru hvert og eitt barn síns tíma. Þau minna á vinahóp þar sem hver einstaklingur býr yfir ákveðinni mann- og skapgerð, útliti og óskum um farsæla framtíð – sem um leið byggir á uppvexti og þroska í menningarlegu tilliti. Þessi ótiltekna borg í ótilteknu landi er harla einstök. Ætli hún sé til? Ég held ég hafi séð hana einhvers staðar. Ég leyfi mér að vitna í eigin grein „Skarphéðinn Jóhannsson arkitekt, maðurinn að baki bygginganna“ í vorhefti Skírnis 2025. Þar er sagt frá námsferð Skarphéðins (1914-1970) um Ítalíu árið 1951. Það kom skýrt fram í bréfum hans til föður síns hvernig hann las ítölsku borgina. Hún geymdi minningar sameiginlegar borgarbúum fráýmsum tímabilum, sýndi mismunandi byggingaraðferðir í sömu byggingunni því hún var oft reist á löngum tíma, og andstæðar byggingargerðir sátu hlið við hlið. Það virtist eðlilegt og hluti af sögunni. Ef til vill var það vegna þess að svo margar þjóðir höfðu sest að á Ítalíu og lært að búa saman – sýnt nágrannakærleik. Menning var óáþreifanlegt fyrirbæri og álitin mikilvægt byggingarefni. Hún var lögð til grundvallar bygginga jafnt á við og steinsteypu, hleðslusteina, viðartegundir og plastefni. Borgin var sem ein heild samansett af áþreifanlegum og huglægum þáttum, mannlífi ólíkra athafna. ...og heim Hvernig væri að taka þessa hugsun til athugunnar í borgarumhverfinu á Íslandi og gefa auk þess náttúrunni rödd og hlusta. Spyrja mætti: Hvernig sest bygging á jörðina? Tekur hún mið af því sem í kringum hana er, það er staðnum? Hverjar eru óskir borgarbúa? Mér dettur í hug greinaflokkurinn Sögur húsanna í Fasteignablaði Morgunblaðsins og Lesbókinni frá árunum 2001 til 2008, sem ég skrifaði ásamt Javier Sánchez Merina. Ósk ritstjóra dagblaðsins þá var að örva umfjöllun um arkitektúr og um leið lestur Fasteignablaðsins. Ástæðan fyrir flutningi greinanna úr Fasteignablaðinu í Lesbókina síðar meir var sú að blaðið hafði fengið kvörtun frá fasteignasölum. Þeir sögðu greinarnar fæla frá því sem þeir hefðu upp á að bjóða. Það má velta því fyrir sér í núverandi umræðu um nýbyggingar og skipulag hvort menn ættu ekki að líta í eigin barm og gera sjálfskoðun undir formerkjum kærleiks og skilnings, þekkingar. Lög og reglugerðir eru búnar til af fólki og ef vilji er fyrir hendi ætti að vera hægt að breyta þeim á grundvelli jafngildis – líkt og gerðist í sambýli dýranna í Hálsaskógi þegar ný lög voru lesin upp. Umhverfið skiptir gríðarlega miklu máli í þroska manneskjunnar. Hús eru alls staðar, bæði fallega og illa hönnuð. Við megum ekki gleyma að framhliðar húsanna er innviður borgarinnar á sama hátt og innirými húsanna endurspegla aðstæður, eiginleika og smekk fólksins sem þar býr. Nágrannakærleikur í arkitektúr þýðir ekki hlutleysi þar sem fjölbreytni finnst aðeins í tilbrigðum andlitsfarða og klæðninga. Nágrannakærleikur í arkitektúr þýðir að heiðarleiki og virðing er borin fyrir staðháttum, bæði í náttúru og menningulegu samhengi. Við verðum að geta fundið fyrir eiginleikum sem leiða af sér vellíðan og lífsgæði. Að eiga heima hér í sambýli við náungann, náttúru og aðrar lífverur – ástað með sögu og framtíð. Höfundur er listfræðingur með doktor í arkitektúr. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arkitektúr Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar