Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Valur Páll Eiríksson skrifar 23. maí 2026 15:54 Fylkismenn gátu fagnað fyrir norðan. Vísir / Hulda Margrét Fylkir er á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta eftir 1-0 útisigur á Völsungi á Húsavík í dag.
Þrír leikir fóru fram í Lengjudeildinni um miðjan dag er fimmta umferð deildarinnar kláraðist. Völsungur spilaði fyrsta leik liðsins undir stjórn Spánverjans Borja Iglesias sem tók við á Húsavík í vikunni. Guðmundur Tyrfingsson skoraði eina mark leiksins af vítapunktinum eftir tæplega hálftímaleik. Fylkir er þökk sé sigrinum á toppi deildarinnar með 12 stig, tveimur á undan Þrótti og Aftureldingu sem eru með tíu stig þar fyrir neðan. Ægir náði í fyrsta stigið á tímabilinu, á útivelli í Njarðvík þar sem liðin gerðu markalaust jafntefli. Ægismenn eru á botni deildarinnar með það eina stig en Völsungur er með tvö stig sæti ofar. Njarðvík er í tíunda sætinu með fimm stig. Hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld skoraði tvö fyrir Gróttu.Mynd/Grótta Grótta fór upp fyrir Njarðvíkinga í níunda sætið þökk sé 5-3 sigri á Vestra á Seltjarnarnesi. Grótta hafði unnið Vestra 4-0 í bikarnum á sama velli fyrir tveimur vikum síðan. Hinn 16 ára gamli Mattías Kjeld, sem kom til Gróttu frá Val í vor, skoraði tvö marka Seltirninga og Andri Freyr Jónasson kom liðinu 3-1 yfir. Mörk Thibang Phete og Guðmundar Páls Einarssonar jöfnuðu leikinn 3-3 á 88. mínútu en Gróttumenn svöruðu í lokin. Björgvin Brimi Andrésson og Alexander Emil Stefánsson skoruðu sitthvort markið í uppbótartíma í skrautlegum 5-3 sigri Gróttu. Gróttumenn eru jafnir Leikni með sex stig í 8.-9. sæti en Vestri er með sjö stig í sætinu þar fyrir ofan.
Lengjudeild karla Fylkir Völsungur Grótta Vestri UMF Njarðvík Ægir Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda „Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ „Satt best að segja er mér drullusama“ Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Uppgjörið: KR - Stjarnan 5-0 | Muldir mélinu smærra „Flengdir á beran bossann og þá þarf að skammast sín“ „Mér fannst þetta ekki víti“ „Ég þakkaði bara Guði“ Sjá meira