„Hefðu átt að vera stærri úrslit“ Árni Gísli Magnússon skrifar 20. maí 2026 21:32 Ian Jeffs hefði viljað halda markinu hreinu. Hulda Margrét Breiðablik sótti góðan 3-1 sigur á Þór/KA norður á Akureyri á VÍS-vellinum í kvöld í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna en að mati þjálfara liðsins hefði sigurinn átt að vera stærri.
Blikar eru með fullt hús stiga en norðankonur eru enn án sigurs og hafa aðeins tvö stig í næstneðsta sæti. Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, var sáttur með sigurinn. „Virkilega ánægður með frammistöðuna í dag. Við vorum bara mjög öflugar frá fyrstu mínútu. Hefðum átt að skora tvö, þrjú mörk í fyrri hálfleik fannst mér. Áttum tvö, þrjú dauðafæri, var smá svekktur með að fara inn í hálfleik bara 0-0. Við fórum aðeins yfir í hálfleik að bara halda áfram og vissum að markið myndi detta inn ef við myndum halda áfram að spila eins og við gerðum í fyrri hálfleik og það tókst og er bara virkilega ánægður með mína leikmenn í dag.“ Bæði lið fengu góð færi í fyrri hálfleik en Blikar náðu að opna vörn Þór/KA betur í síðari hálfleik og búa til hættulegar stöður. „Við vorum kannski bara að tengja svona og komast á milli varnar- og miðjusvæði hjá þeim aðeins betur, aðeins oftar, sem var að skapa meira pláss á bak við. Við vorum líka að stíga upp með hafsentinn stundum sem setti boltann bara yfir varnarlínuna og bara fín hlaup hjá Edith (Kristínu Kristjánsdóttur) þarna vinstra megin og var að koma sér oft í góðar stöður og Ása (Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir) líka, tók bara mjög góð hlaup án bolta í seinni hálfleik. Agla María (Albertsdóttir) var að tengja og finna opin svæði og mér fannst þetta bara góður leikur hjá okkur.“ Hrafnhildur og Edith stórhættulegar Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir og Edith Kristín Kristjánsdóttir voru stórhættulegar fram á við í dag og skiluðu báðar marki. Hrafnhildur sótti auk þess vítaspyrnu sem fyrsta markið kom úr. „Þær eru bara með mikinn hraða og ef þær ná að komast á bak við varnarlínuna þá er erfitt að eiga við þær. Vantar aðeins upp á ákvarðanatöku stundum á síðasta þriðjung en þær eru búnar að vera virkilega góðar fyrir okkur í upphafi móts.“ Svekkjandi sárabótamark Þór/KA skoraði sárabótarmark á síðustu sekúndu leiksins en sem Jeffs segir vera smá pirrandi. „Já það gerist stundum þegar þú ert að skipta mörgum leikmönnum inn á, ekki að setja neitt út á þær, en bara svona jafnvægið stundum í þínu liði og færa menn til og eitthvað svona. Ég er svekktur með það en held við höfum unnið mjög sannfærandi sigur í dag og hefðu átt að vera stærri úrslit í dag í mínum huga.“
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Breiðablik Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Norðmaðurinn fjórði en reif kjaft: „Hvaða lúsera er ég að keppa við?“ Sport Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Enski boltinn „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Fleiri fréttir Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sjá meira