Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Sindri Sverrisson skrifar 20. maí 2026 14:00 Hans Óttar Lindberg skiptir núna út handboltatreyjunni fyrir önnur föt. Getty/Martin Sylvest Andersen Hans Óttar Lindberg Tómasson, eins og hann heitir fullu nafni í íslensku þjóðskránni, hefur lagt handboltaskóna á hilluna, 44 ára að aldri. Hann hefur fyrir löngu skráð sig í sögubækurnar sem ein mesta markamaskína í sögu íþróttarinnar.
Frá þessu greina danskir miðlar og segja að þar með sé einn besti landsliðsmaður Danmerkur frá upphafi endanlega hættur. Lindberg á íslenska foreldra, þau Tómas Erling Lindberg heitinn og Sigrúnu Sigurðardóttur sem bæði léku handbolta með FH, en er fæddur og uppalinn í Danmörku. Hans Lindberg valdi að spila fyrir Danmörku enda uppalinn þar en hann mætti íslenska landsliðinu á stórmótum.Getty/Christof Koepsel Hann hætti í danska landsliðinu fyrir tveimur árum, eftir að hafa meðal annars unnið HM tvisvar, EM tvisvar og Ólympíuleikana einu sinni, og er nú einnig hættur í félagsliðaboltanum eftir vægast sagt farsælan feril. Þessi magnaði hornamaður lék síðast með HÖJ Elite og verður nú yfirmaður íþróttamála hjá félaginu. „Einn af þeim stærstu sem við höfum átt“ „Hans er einn af þeim stærstu sem við höfum átt. Á því leikur enginn vafi og hann hefur dregið þungan vagn í mörg ár, bæði með félagsliði sínu og ekki síst með landsliðinu,“ sagði Nikolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur við Ekstra Bladet. „Hann hefur verið hluti af stórkostlegu tímabili og langur ferill hans ber því vitni. Þetta er einstakur ferill með mörgum titlum. Hann hefur haldið út í mörg ár,“ sagði Jacobsen enda spannar ferill Lindberg meira en aldarfjórðung. Hans Lindberg er markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar í Þýskalandi, sterkustu landsdeildar heims í handbolta.Getty/Simon Hofmann Lindberg náði að spila 308 landsleiki og skoraði í þeim 809 mörk. Þá er hann markahæstur í sögu efstu deildar í Þýskalandi með 3.115 mörk. „Þetta er hárrétti tímapunkturinn fyrir mig til að hætta og takast á við nýja áskorun,“ segir Lindberg í tilkynningu um að hann sé hættur að spila til að taka við sem íþróttastjóri HÖJ Elite. „Ég er glaður og stoltur af þeim ferli sem ég hef átt og ég er þakklátur fyrir öll þau mörgu augnablik sem ég hef átt. Ég hef reynt og afrekað meira en mig hafði nokkurn tíma dreymt um og ég vil þakka öllum sem hafa hjálpað mér og stutt mig bæði innan vallar sem utan,“ segir Lindberg.
Handbolti Danski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Finnur til með Arnari Handbolti Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira