Að slá gras á umferðareyjum er það mikilvægara en geðheilsa barna? Grímur Atlason skrifar 20. maí 2026 11:01 Í nýafstöðnum kosningum var lítið talað um börn. Meira talað um Suðurlandsbraut og slátt á umferðareyjum. Það er alveg í takti við þróun samfélagsins – börn eru þar ekki í efstu sætunum yfir það mikilvægasta. Því miður. Þegar Viðskiptaráð fjallar um börn þá er það oftar en ekki til þess að benda á hagkvæmari leiðir til að reka leik- og grunnskóla eða annað sem hið opinbera er ekki enn búið að útvista. Nú eða hvernig auka megi samkeppnina svo börnin okkar skori ekki svona lágt í Pisakönnunum. Það er ekki við Viðskiptaráð að sakast. Orð eins og samkennd og samfélag eru á undanhaldi fyrir orðin samkeppni og frelsi einstaklingsins. Landssamtökin Geðhjálp hafa síðastliðin ár ítrekað bent á mikilvægi þess að setja barnæskuna efst á lista samfélagsins yfir það sem ætti að forgangsraða. Með því værum við að hlúa að geðheilbrigði framtíðarinnar. Við köllum þetta að vera fyrir ofan fossinn í stað þess að vera alltaf að bregðast við. Það er mikilvægt. Í skýrslu Nordic Health & Welfare Statistics, sem kom út í lok mars sl., má sjá geðheilsuvísa sem gefa ákveðnar vísbendingar um hvert við stefnum sem samfélag. Þessi skýrsla hefur ekki farið hátt frá því hún kom út og var hvergi umræðuefni svo vitað sé í nýliðinni kosningabaráttu. Hvernig verður geðheilbrigði þjóðarinnar háttað á næstu árum og áratugum? Á hvaða leið erum við? Það má sjá ýmsar vísbendingar í þessari skýrslu. Geðvandi Á meðfylgjandi mynd (1) má sjá þróun geðgreininga meðal barna á Íslandi í greiningarflokkunum: átröskun, þunglyndi og kvíðaröskun. Mynd 2 - Greindur vandi vegna taugaþroskaraskana Árið 2024 voru 707% fleiri stúlkur á aldrinum 0 til 18 ára greindar með kvíðaröskun en árið 2010 og 505% fleiri strákar. Það voru 308% fleiri drengir greindir með átröskun og 268% stúlkur. Þunglyndis greiningum stráka fjölgaði um 124% og um 197% hjá stúlkum. Taugaþroskaraskanir Á meðfylgjandi mynd (2) má sjá þróun greininga á taugaþroskaröskunum þetta sama tímabil. Mynd 1 - Greindur vandi af geðrænum toga ADHD greiningum stráka fjölgaði um 203% frá 2010 til 2024 og um 478% hjá stúlkum. Einhverfu greiningum stráka fjölgaði á sama tíma um 428% og hjá stúlkum um 654%. Suðurlandsbrautin skiptir í raun engu máli Geðgreiningar og meðferð í framhaldinu geta skipt öllu máli. Með því að draga fram þessa tölfræði er ekki verið að tala niður lyf, greiningar eða aðrar meðferðir. Hér er verið að benda á þróun samfélags og draga fram hluta af þeim geðheilsuvísum sem segja til um á hvaða leið við erum. Ef við viljum raunverulega setja hagsmuni barna og framtíðarinnar á dagskrá þá verðum við að taka ákvörðun um að gera það. Ofangreindir geðheilsuvísar benda til þess að þróunin sé um margt ískyggileg. Suðurlandsbrautin og aðrir þraspyttir sem við leggjumst svo gjarnan í skipta í rauninni engu máli. Algjört hjóm. En það eru börnin ekki. Höfundur er framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Heimild: Nordic Health & Welfare Statistics: https://nhwstat.org/publications/psychiatric-diagnoses-among-children-and-young-people-nordic-countries Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grímur Atlason Geðheilbrigði Börn og uppeldi Mest lesið Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 5.9.2026 Halldór Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar