Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Sindri Sverrisson skrifar 19. maí 2026 11:00 Alfreð Gíslason þurfti að horfa upp á enn eitt tap Þýskalands gegn Danmörku á sunnudag, í Lanxess Arena í Köln. Getty/Federico Gambarini Alfreð Gíslason gæti verið á leið á sitt síðasta stórmót sem þjálfari þýska handboltalandsliðsins, næsta vetur. Hann fékk harkalega gagnrýni eftir tap gegn „B-liði“ Danmerkur á sunnudaginn.
Alfreð stýrði sínum mönnum í tveimur vináttulandsleikjum gegn Evrópu-, heims- og ólympíumeisturum Danmerkur. Fyrri leikurinn tapaðist 36-28 í Kaupmannahöfn og sá seinni 31-29 í Köln. Í seinni leiknum voru Danir án leikmanna á borð við Mathias Gidsel, Magnus Saugstrup, Mads Hoxer og Thomas Arnoldsen en það kom ekki að sök og þeir halda áfram hreðjataki á Þjóðverjum. Á síðustu tíu árum, í ellefu leikjum, hefur Danmörk alltaf unnið Þýskaland, þar á meðal í úrslitaleiknum á EM í janúar og í úrslitaleik Ólympíuleikanna 2024. Claus Møller Jakobsen, sérfræðingur TV 2 í Danmörku og fyrrverandi landsliðsmaður, gerði Alfreð að sökudólgi í umræðum eftir leikinn á sunnudaginn. Hann hvetur Þjóðverja til að skipta um þjálfara eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í janúar, þegar samningur Alfreðs rennur út. Sóknarleikur Þýskalands snýst allt of mikið um hvað Juri Knorr ætlar að gera, að mati sérfræðinga TV 2.Getty/Federico Gambarini Sér enga þróun og ekkert leikskipulag „Mér finnst það mikið áhyggjuefni að sjá hvernig Alfreð Gíslason hefur nákvæmlega ekkert lært síðan á lokamóti EM í janúar um hvað það þýðir að fá þetta lið til að spila sem liðsheild,“ sagði Møller Jakobsen. Hann segir sóknarleik Þýskalands snúast allt of mikið um einstaklingsframtak. „Þegar Juri Knorr er á vellinum þá snýst allt um Juri Knorr og hinir verða bara aukaleikarar í sirkusi Knorr,“ sagði Møller Jakobsen, sannfærður um að þýska liðið sé ekki á réttri braut undir stjórn Alfreðs. Claus Møller Jakobsen er sérfræðingur hjá TV 2. „Ef maður horfir einangrað á hvernig leikurinn þróast og hvernig hann þróar þetta landslið áfram og fellir þessa mjög hæfileikaríku og ungu leikmenn inn í það, þá sé ég enga þróun og ekkert leikskipulag. Ég sé ekkert sem er gert til að efla sérstaka styrkleika þessara ungu leikmanna,“ sagði hann og fékk stuðning frá Lasse Svan. Svan sagðist telja landsliðið komið á stað „þar sem það þyrfti á meiri taktískri færni að halda og þjálfara með leikskipulag sem leikmennirnir tryðu á.“ Besta lið heims þó nokkra vanti Sjálfur benti Alfreð á hve mikið yfirburðalið Danmörk hefur verið síðustu ár og virðist enn vera. „Danmörk er líklega enn næstbesta lið heims [á eftir fullskipuðu liði Danmerkur] þrátt fyrir að nokkra leikmenn vanti. Á móti slíku liði þarftu að spila mjög, mjög vel til að vinna. Það tókst okkur ekki alveg – þess vegna er ég vonsvikinn,“ sagði Alfreð. Knorr tók í svipaðan streng: „Nú höfum við unnið silfur á tveimur af síðustu þremur mótum. Auðvitað erum við meðal þeirra sem geta unnið til verðlauna, en það væri ofmat að segja núna að við séum líklegir til að vinna titilinn [heimsmeistaratitilinn í janúar á heimavelli] þegar við töpum fyrir Danmörku, jafnvel fyrir meintu B-liði þeirra,“ sagði Knorr.
Þýski handboltinn Handbolti Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Keflavík og á Króknum Körfubolti Fleiri fréttir Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sjá meira