Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Árni Sæberg skrifar 18. maí 2026 16:59 Atvik málsins urði í og við Keflavíkurkirkjugarð. Ísak Berglindarson Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata.
Líkt og fjallað hefur verið um í dag barst Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning klukkan 09:10 um einstakling í ójafnvægi í Reykjanesbæ. Þegar lögregla kom á vettvang hafði viðkomandi verið ógnandi, æstur og ekki farið að fyrirmælum lögreglunnar, að því er sagði í tilkynningu lögreglu í morgun. „Viðkomandi hafði hellt yfir sig bensíni og hótaði að kveikja í sér. Lögregla beitti rafvarnarvopni til að yfirbuga viðkomandi, sem virtist ekki skila árangri. Viðkomandi nær þá að bera eld að sér með kveikjara sem hann hafði meðferðis. Hann var færður á sjúkrahús til aðhlynningar með brunasár víða.“ Vitni að atvikinu Ísak Berglindarson varð vitni að atvikinu í morgun og hafði samband við fjölmiðla og Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu áður en tilkynning lögreglu barst. Þegar blaðamaður ræddi við hann í morgun sagðist hann viss um að kviknað í manninum eftir að hann var skotinn með rafbyssu, enda hafi hann verið þakinn íkveikivökva. „Maðurinn byrjar náttúrulega að öskra, alveg brjálaður, hleypur um, rúllar sér í grasinu og nær að slökkva í sér. Ég öskra á lögregluna, hvað eru þið að gera? Gerið eitthvað, ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum. Það slökknar í manninum og þá handtaka þeir hann.“ Mátu hættuna mikla Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum, hefur nú sent frá sér aðra fréttatilkynningu vegna gagnrýni Ísaks á störf lögreglu. „Við notkun rafvarnarvopns við handtöku fyrr í dag tóku lögreglumenn upplýsta ákvörðun um að beita því. Lögreglumenn veltu öðrum valbeitingarvalkostum fyrir sér en mátu hættuna af skaða fyrir viðkomandi mikla sem og hættu fyrir þau sjálf vera þess eðlis að beiting rafvarnarvopns var besti valkosturinn.“ Þá segir að við skoðun embættisins á myndefni sem og tölfræði, sem rafvarnarvopnið haldi, sé hægt að segja að lögreglumaður hafi sent pílur úr rafvarnarvopninu af löngu færi, sem hafi ekki náð tilætluðum árangri. Það er að segja að rafleiðni hafi verið í algjöru lágmarki, ef nokkur. Fer til nefndarinnar „Varðandi þann þátt aðgerðarinnar að lögreglumenn á vettvangi hafi farið fram á það við vegfaranda sem var að taka upp á símann sinn að viðkomandi myndi eyða myndefninu. Þetta var gert til þess að gæta hagsmuna þess sem var þarna í miklu ójafnvægi og án fata,“ segir Bjarney. Loks segir að Nefnd um eftirlit með lögreglu muni fá málið til skoðunar frá embættinu.
Lögreglan Lögreglumál Reykjanesbær Rafbyssur Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira