Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Lovísa Arnardóttir skrifar 18. maí 2026 11:38 Bílaröðin við Suðurlandsveg. Aðsend G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir seinni akrein á Suðurlandsvegi verða malbikaða að nóttu til. Miklar tafir eru á Suðurlandsvegi í dag en unnið er að fræsingu og malbikun á Suðurlandsvegi við Hólmsá.
Í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, kemur fram að umferðarstýring sé á svæðinu og að búast megi við talsverðum umferðartöfum. Tilkynningin var birt eftir að framkvæmdir hófust í morgun. „Það er töluvert meiri umferð en menn reiknuðu með og það er búið að ákveða að malbika bara aðra akreinina um nótt,“ segir Pétur í samtali við fréttastofu. Hann segir búið að útbúa malbik á aðra akreinina og því verði þeirri vinnu lokið í nótt en það sé búið að ákveða að malbika hina að nóttu til. Þá verði einnig umferðarstýring og framkvæmdin verði auglýst betur. Töluverður fjöldi hefur hringt og sent tölvupósta til fréttastofu vegna tafa. Ein segist hafa beðið í allt að fimmtíu mínútur og að hún sé orðin sein í læknatíma vegna tafarinnar. Hún hefði farið aðra leið hefði hún vitað af framkvæmdunum og segir þær ekki hafa verið nægilega vel auglýstar. Pétur segir að það verði unnið til fjögur eða fimm í dag í stað 20 eins og áætlað var. Svo verði farið í seinni akreinina eftir 20. maí og að nóttu til. Veistu meira um málið eða áttu myndir? Sendu okkur á ritstjorn@visir.is. Uppfært: Tilkynning frá Vegagerðinni: Vegna mikilla umferðartafa verður aðeins önnur akreinin við Hólmsá malbikuð fyrri part dags í dag og áætlum við fulla opnun á Suðurlandsvegi fyrir kl 17:30 í dag. Akreinin í vesturátt verður svo malbikuð á kvöldvakt í dag, 18. maí og verður umferðarstýring frá kl 19:00 mánudaginn 18. maí til 01:00 þriðjudaginn 19. maí.
Vegagerð Umferð Reykjavík Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför Sjá meira