Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Árni Sæberg skrifar 18. maí 2026 09:14 Björgunarskipið Björg dró fiskibátinn fyrsta spölinn. Landsbjörg Í nótt og morgun hafa áhafnir þriggja björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar verið í aðgerðum við að koma aflvana fiskibátum til aðstoðar.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi, sunnudagskvöld, hafi stjórnstöð Landhelgisgæslunnar borist beiðni um aðstoð frá fiskibát sem þá var staddur í miðjum Breiðafirði og hafði orðið fyrir vélarbilun. Um borð hafi þá verið tveir í áhöfn en þeir hafi verið á leið til Hafnarfjarðar til viðgerða á bátnum. Áhöfn björgunarskipsins Bjargar á Rifi hafi verið boðuð út og hún hafi haldið til aðstoðar. Þegar klukkan var um tuttugu mínútur í níu hafi Björg verið komin að skipinu og í framhaldinu hafi taug verið komið á milli og stefnan sett suður fyrir Snæfellsnes. Kristrún frá Bjargi tók við Í millitíðinni hefði áhöfnin á Kristrúnu frá Bjargi, björgunarskipinu á Akranesi, verið boðuð út til að halda til móts við Björgina og taka við drætti fyrir sunnan Malarrif og draga bátinn seinni spölinn til Hafnarfjarðar þangað sem ferðinni var upphaflega heitið. Skipin hafi svo mæst um þrjúleitið í nótt og þá hafi Kristrún frá Bjargi tekið við drætti en Björg haldið til heimahafnar, þangað sem hún hafi verið komin um fjögurleytið. Nú um níuleytið sé svo Kristrún að renna inn í Hafnarfjarðarhöfn. Óttuðust að eldur brytist út Um hálfsjö í morgun hafi áhöfnin á Húnabjörginni, björgunarskipinu á Skagaströnd, boðuð út vegna fiskibáts sem hefði lent í vandræðum á Húnaflóa. Vél skipsins hefði ofhitnað og um tíma hafi verið óttast að eldur gæti brotist út. Svo hafi þó ekki farið og skipverja hafi tekist að drepa á vél með því að loka fyrir eldsneytisrennsli að henni. Húnabjörgin hafi svo verið komin með bátinn til hafnar á Skagaströnd rétt um átta í morgun.
Björgunarsveitir Sjávarútvegur Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira