Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar 15. maí 2026 11:12 Það er merkilegt hvað húsnæðisskortur á höfuðborgarsvæðinu er oft ræddur eins og náttúruhamfarir. Eins og hann hafi bara dunið yfir okkur, líkt og rokið eða nefndarskipulagið hjá Reykjavíkurborg. En húsnæðisskortur er meðvituð ákvörðun. Ákvörðun Samfylkingarinnar um að borgarlínuáform höfuðborgarinnar komi framar öllum öðrum hagsmunum vinnur gegn hagsmunum Hafnfirðinga. Forsendur borgarlínunnar eru að búa til húsnæðisskort, byggja einsleit stór fjölbýlishús, markvisst þrengja að fjölskyldubílnum og þvinga íbúa höfuðborgarsvæðisins í samgöngumáta sem illa henta Hafnfirðingum. Þetta er stefna sem varin er með vaxtamörkum höfuðborgarsvæðisins og þess vegna þarf að ræða vaxtamörk höfuðborgarsvæðisins af alvöru. Vaxtamörkin eru orðin alvarleg hindrun í framþróun og vexti Hafnarfjarðar, bæði hvað varðar nýjar lóðir fyrir íbúðir og sérbýli og þegar kemur að atvinnuuppbyggingu. Lífsgæði Hafnfirðinga hafa nú þegar skerst verulega með áhrifunum af þessari óumbeðnu stefnu og að óbreyttu munu áhrifin verða enn þá meiri á komandi árum með áframhaldandi húsnæðisskorti og nú þegar næsti hluti í planinu er að stórauka ferðakostnað Hafnfirðinga. Hafnarfjörður á ekki að þurfa leyfi frá Reykjavík til að þróast Við erum sjálfstætt sveitarfélag. Hér býr fólk sem kýs sína fulltrúa til að taka ákvarðanir um framtíð bæjarins. Samt er staðan sú að ákvarðanir um vaxtarmöguleika Hafnarfjarðar eru að verulegu leyti bundnar í kerfi þar sem Reykjavík hefur gríðarlegt vægi og pólitískir bandamenn meirihlutans í ríkisstjórn virðast helst hafa áhuga á að verja óbreytt plan. Samfylkingin í Reykjavík hefur árum saman rekið skipulagsstefnu sem byggir á því að búa til húsnæðisskort sem grunn að þéttingu byggðar. En sú stefna er fyrir löngu komin út í skurð og er farin að hafa veruleg áhrif á okkur Hafnfirðinga. Þétting getur vissulega verið góð upp að vissu marki en hún tryggir ekki fjölbreytt húsnæði fyrir barnafólk. Hún lækkar ekki verð ef framboðið fylgir ekki þörfinni. Það er ekki nóg að teikna fallegar myndir af borgarlífi, pálmatrjám og sólskini ef venjulegt fólk hefur ekki efni á að búa þar og fyrirtækin vilja ekki starfa þar. Borgarlínan í Reykjavík má ekki hamla því að Hafnarfjörður geti vaxið Við getum skipulagt ný hverfi af ábyrgð. Við getum byggt fjölbreytt húsnæði. Við getum verndað náttúru og útivistarsvæði samhliða þessu. Við getum hugsað til framtíðar án þess að láta úreltar forsendur og stjórnlyndi Samfylkingarinnar í Reykjavík stjórna öllu. En til þess þarf svigrúm og afnema þarf neitunarvald Reykjavíkur á sjálfstæði Hafnfirðinga í skipulagsmálum. Sveitarstjórnarkosningar núna um vilja Hafnfirðinga um framtíð Hafnarfjarðar. Það þarf að endurskoða vaxtarmörkin. Það þarf að skoða hvort núverandi kerfi þjóni íbúum Hafnarfjarðar eða fyrst og fremst þeim sem vilja halda völdum yfir skipulagsþróunni þvert á öll sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins. Og það þarf að spyrja hvort pólitískir fulltrúar Samfylkingarinnar og Viðreisnar í Hafnarfirði standi með Hafnfirðingum eða fylgi skipunum úr Reykjavík. Forsætisráðherra, formaður Samfylkingarinnar, hefur ekki legið á skoðunum sínum um sveitarfélög landsins á síðustu dögum. Hún hefur verið ófeimin við að gagnrýna þau, oft af talsverðum þunga. Það væri þá ekki ósanngjarnt að sama krafa um ábyrgð næði líka til Reykjavíkur, stærsta sveitarfélags landsins, þar sem hennar eigin flokkur hefur haldið skipulagsmálum hinna sveitarfélaganna í gíslingu og ætlar enga breytingu þar á. Ábyrgð er nefnilega skemmtilegt hugtak í huga forsætisráðherra. Hún á víst ekki við um hennar eigið flokksfólk, bara um okkur hin. Húsnæðisskorturinn verður ekki leystur með slagorðum og hann verður ekki leystur með því að láta Reykjavík ráða ferðinni fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Hafnarfjörður á að fá að vaxa af skynsemi. Ekki stjórnlaust. Ekki hugsunarlaust. Heldur með ábyrgð, framtíðarsýn og raunverulegum valkostum fyrir fólk sem vill búa hér. Það er kominn tími til að Hafnfirðingar fái skipulagsvaldið aftur til sín, kerfileg mistök þarf að laga, endurskoða vaxtarmörkin og leyfa Hafnarfirði að vaxa, frjálsum og í friði fyrir yfirgangi Samfylkingarinnar í Reykjavík. Höfundur er bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar