Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar 15. maí 2026 10:51 Rannsóknaþjónusta Evrópuþingsins (European Parliamentary Research Service – EPRS) vinnur greiningar og samantektir fyrir þingmenn og starfsfólk Evrópuþingsins um stefnumál, lagasetningu og pólitíska þróun innan og utan Evrópusambandsins. Skýrslur þjónustunnar eru ekki formleg stefna Evrópusambandsins, en þær gefa mikilvæga innsýn í hvernig mál eru metin og rædd innan stofnana ESB. Í janúar á þessu ári (2026) birti rannsóknarþjónustan ítarlega skýrslu um samskipti Íslands og Evrópusambandsins. Þar er meðal annars farið yfir stöðu Íslands gagnvart mögulegri aðild að sambandinu, þróun stjórnmála hér á landi, öryggis- og varnarmál, stöðu fyrri aðildarviðræðna og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna. Pólitísk stefnumótun Evrópusambandsins gagnvart Íslandi Það vekur sérstaka athygli að strax í upphafi skýrslunnar er fjallað ítarlega um stöðu umsóknar Íslands um aðild að Evrópusambandinu frá árinu 2009 og það orðalag sem leggja eigi fyrir Íslendinga í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Í þeim kafla skýrslunnar sem ber yfirskriftina „Iceland's European integration: Renewed interest“ segir að eftir meira en áratug þar sem Evrópumál hafi ekki verið fyrirferðarmikil í íslenskum stjórnmálum virðist staðan vera að breytast á ný. Þar segir jafnframt að þingkosningarnar í nóvember 2024, þar sem aðild Íslands að Evrópusambandinu var lítið til umræðu, hafi reynst flokkunum sem styðja aðild Íslands að ESB hagstæðar, þ.e. Samfylkingunni og Viðreisn. Í skýrslunni segir síðan orðrétt að ný ríkisstjórn þessara tveggja flokka ásamt Flokki fólksins, sem sé andvígur aðild að Evrópusambandinu, hafi samþykkt að halda þjóðaratkvæðagreiðslu eigi síðar en árið 2027 um það hvort hefja eigi að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þá er sérstaklega fjallað um að „mikilvægt“ sé hvernig spurningin verði orðuð, þar sem atkvæðagreiðslan eigi ekki að snúast um það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið heldur „einungis“ um það hvort opna eigi að nýju aðildarferlið. Loks kemur fram að ef niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði jákvæð geti Ísland hafið aðildarviðræður að nýju, enda hafi umsókn Íslands aldrei verið formlega afturkölluð heldur aðeins verið sett á ís. Afskipti af pólitískri umræðu á Íslandi Það sem gerir þessa skýrslu sérstaklega athyglisverða er að í henni er umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu meðhöndluð sem áfram lifandi ferli. Ítrekað er tekið fram að umsóknin hafi aldrei verið formlega afturkölluð heldur aðeins verið „suspended“, sett á ís. Jafnframt er rætt um mögulega endurupptöku viðræðna eins og um opið og áframhaldandi pólitískt ferli sé að ræða. Þarna vaknar einnig önnur spurning. Sú afstaða sem sett er fram í skýrslunni að umsókn Íslands sé áfram „lifandi“ er mjög umdeild hér á landi. Fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, fjallar ítarlega um að íslensk stjórnvöld hafi formlega slitið viðræðunum árið 2015 í umsögn sinni til utanríkismálanefndar Alþingis um þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna. Hann segir þar Evrópusambandið hafi á sínum tíma viðurkennt þá ákvörðun og í kjölfarið fjarlægt Ísland af listum umsóknarríkja. Gunnar Bragi segir ennfremur að það sé „misskilningur“ að tala um áframhaldandi virka umsókn og vísar meðal annars til umsagnar Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, sem segir að sérhvert nýtt ferli yrði í raun ný umsókn. Þegar þetta er haft í huga verður enn athyglisverðara að rannsóknarþjónusta Evrópuþingsins skuli í skýrslu sinni leggja sérstaka áherslu á hvernig orða eigi spurninguna í þjóðaratkvæðagreiðslunni og að hún eigi aðeins að snúast um „endurupptöku“ viðræðna. Þá blasir einnig við sú spurning við hvort innan Evrópusambandsins sé orðin ráðandi ákveðin pólitísk frásögn um að umsókn Íslands hafi í raun aldrei lokið – og hvort sú nálgun sé orðin hluti af undirbúningi fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi. Þarna vakna ennfremur stjórnskipulegar og lýðræðislegar spurningar. Hvar liggja mörkin milli eðlilegra samskipta ríkja og virkrar pólitískrar mótunar á innanríkisumræðu fullvalda þjóðar? Þá hljóta Íslendingar að spyrja sig: Hve langt er eðlilegt að erlendar stofnanir gangi í því að hafa áhrif á umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu áður en Alþingi og íslenskur almenningur hafa lokið sinni eigin umræðu um málið? Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Erna Bjarnadóttir Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“ ? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahætti kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar