Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar 15. maí 2026 10:01 ,,Ætli ég eigi ekki bara að vera eitthvað sýningardýr hérna“ sagði einn bóndi við mig á dögunum meðan hann mændi upp í fjallið útúr fjárhúsum sínum. Þessi setning er lýsandi fyrir tilfinningu fjölda bænda sem ég hef átt samtal við síðustu misseri. Bændur tala um að þeir upplifi enga alvöru felast í fögrum orðum ríkisvaldsins og annarra um mikilvægi landbúnaðar. Allir segjast vilja hafa landbúnað en lítið beri á raunverulegum aðgerðum sem eru hvetjandi fyrir bændur til að fjárfesta og efla sinn rekstur. Þetta veldur því að bændur upplifi jafnvel að þeir eigi aðeins að vera til sýnis þegar fólk tekur bíltúr um landið á tyllidögum. Áskoranir landbúnaðarins hafa lítið verið í umræðunni síðustu misseri en þær eru sannarlega enn til staðar. Á síðustu árum hefur rekstrarkostnaður í landbúnaði hækkað verulega, öll þjónusta hefur farið hækkandi ásamt aðföngum og þar vegur þungt fordæmalaus hækkun á áburðarverði eftir innrás Rússa í Úkraínu. Verðið tvöfaldaðist á skömmum tíma og þrátt fyrir að það hafi aðeins lækkað hefur það hvergi nærri gengið til baka. Bændur standa því enn frammi fyrir miklum aðfangakostnaði sem hefur bein áhrif á afkomu og getu til uppbyggingar. Á sama tíma hefur óvissa um mögulegar aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið þegar byrjað að hafa áhrif á greinina og kælt fjárfestingu í henni. Landbúnaðurinn er í mikilli fjárfestingarskuld og fyrirsjáanleiki er grundvallaratriði þegar kemur að uppbyggingu. Því miður heyrist nú víða að bændur séu að halda að sér höndum og fresta fjárfestingum vegna óvissu um framtíðina. Þetta er gríðarlega alvarlegt því að án fjárfestinga verður erfiðara að viðhalda framleiðslu, nýsköpun og atvinnu í dreifbýli. Við megum nefnilega ekki gleyma því að landbúnaður snýst um miklu meira en matvælaframleiðslu eina og sér. Í kringum landbúnað byggist upp þjónusta, þúsundir starfa og samfélög um allt land. Sveitirnar eru ekki byrði heldur gríðarleg auðlind og auður sveitarfélaganna felst ekki síst í fólkinu sem býr og starfar í dreifbýli, byggir upp samfélögin og heldur í þeim lífi. Það er sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga að stuðla að aukinni sjálfbærni samfélagsins, efla fæðuöryggi og sjálfsaflahlutfall þjóðarinnar. Við sjáum það æ betur að þjóðir sem geta treyst á eigin matvælaframleiðslu standa sterkari þegar áföll dynja yfir. Þess vegna skiptir máli að stjórnvöld tali ekki aðeins fallega um landbúnað heldur fylgi orðunum eftir með raunverulegum aðgerðum. Nýtum tækifærin Tækifærin í íslenskum landbúnaði eru fjölmörg. Á sama tíma og við þurfum að styðja við hefðbundinn búskap verðum við einnig að horfa til aukinnar fjölbreytni í atvinnusköpun í sveitum landsins. Við eigum möguleika á aukinni garðyrkju víðar um land, en þar er lykilatriði að jafna raforkukostnað svo fólk sitji við sambærileg skilyrði óháð búsetu. Þá hafa tækifæri í skógrækt, kornrækt og annarri nýtingu lands einnig aukist á síðustu árum. Til að þessi þróun geti orðið að veruleika þurfa grunninnviðir að vera í lagi. Vegir, raforka, internet og öruggt símasamband eru ekki munaður heldur forsenda búsetu og atvinnuuppbyggingar. Við lifum á tímum þar sem tæknibreytingar eru hraðar og gervigreindarbyltingin er sögð sambærileg við tilkomu internetsins. Því er algjörlega óásættanlegt að íbúar í dreifbýli upplifi sig nú með versnandi símasamband. Það er ekki aðeins atvinnumál heldur grundvallaröryggi sem fólk þarf að búa við. Sveitarfélög halda ekki sjálf á öllum þeim málum sem skipta íbúa máli, svo sem samgöngum og fjarskiptum. En fulltrúar sveitarfélaga þurfa engu að síður að vera ötulir talsmenn sinna samfélaga gagnvart ríkinu og öðrum aðilum. Þar eiga málefni landbúnaðar og dreifbýlis að vera í forgrunni. Nema við viljum að íslenskir bændur verði jafn sjaldséðir og ísbirnir og það dugi okkur einungis fá að sjá bónda í Húsdýragarðinum verðum við að standa vörð um íslenskan landbúnað og öflugt dreifbýli. Við þurfum að styðja við fólkið sem heldur uppi framleiðslu, atvinnu og byggð um allt land og nýta þau fjölmörgu tækifæri sem leynast í sveitunum. Ég skora á frambjóðendur til sveitarstjórna um allt land að hlúa að málefnum landbúnaðar og dreifbýlis í sínum sveitum. Við á lista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi ætlum að styðja við uppbyggingu í sveitum, vera ötulir talsmenn úrbóta og viljum efla landbúnað og dreifbýli til framtíðar. Höfundur skipar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
,,
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar