Lífsgæði fyrir alla - Áhersluatriði Öldungaráðs Viðreisnar Sverrir Kaaber skrifar 14. maí 2026 15:15 Til að styrkja lífsgæði í sveitarfélögum þurfa eldri borgarar að vera virkir í samfélaginu. Við viljum sjá að þeirra dýrmæta reynsla og þekking nýtist til að skapa betri lífsgæðií öllum sveitarfélögum landsins. Fjölgun eldri íbúa verðurein mesta áskorun sveitarfélaga næstu áratugina. Til að ræða málefni eldri borgara þarf að hafa raunverulegt samráð og útfæra skýra stefnu, ásamt markvissum aðgerðum sem tryggja sem allra best virkni þeirra. Frá aldamótum hefur meðalaldur þjóðarinnar hækkað . Á sama tíma og landsmönnum hefur fjölgað um 41%,hefur60 ára og eldri fjölgað um 103%. Í allri þjónustu þarf að taka tillit til þessarar breytinga á aldursdreifingu þjóðarinnar. Öldungaráð Viðreisnar leggur áherslu á að eldri borgar séu virkir þátttakendur í samfélaginu. Öll sveitarfélög eiga að virkja þekkingu og reynslu þeirra miklu betur en nú er gert. Við leggjum því til fimm áhersluatriði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 1. Rödd eldri borgara – íbúalýðræði í verki Góðar ákvarðanir verða til í samtali við þá sem málin varða. Við viljum tryggja að eldri borgarar hafi raunveruleg áhrif á stefnumótun sveitarfélaga með virku samráði, reglulegum íbúafundum og opnum vettvangi. Gagnsæi, forgangsröðun,árangursmat og gott aðgengi að upplýsingum á að vera í öllum málaflokkum. Gagnsæi í rekstri og íbúalýðræði er lykilatriði til að byggja upp traust. 2. Sterkt félagslíf og virk þátttaka Félagsleg tengsl eru grunnur að heilsu, vellíðan og lífsgæðum. Við viljum efla félög eldri borgara, tryggja þeim aðstöðu og stuðning og skapa fleiri tækifæri til líkamsræktar, menningar og sjálfboðaliðastarfs. Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem tengja kynslóðir og draga úr einangrun.Jafnframt þarf að tryggja að eldri borgarar fái leiðbeiningar um notkun stafrænna lausna. 3. Sjálfstæð búseta og öflug heimaþjónusta Íbúar á öllum aldrei eiga að geta valið búsetuúrræði við hæfi. Við viljum fjölga aðgengilegum íbúðum og þróa fjölbreyttari þjónustuíbúðir sem mæta mismunandi þörfum. Um leið þarf að efla heimaþjónustu og heimahjúkrun. Stuðlum að öryggi og góðum lífsgæðum heima sem allra lengst. 4. Aðgengi, samgöngur og nærumhverfi Gott aðgengi eldra fólks að andlegri- og líkamlegri heilsueflingu er grunnur að virkri þátttöku í samfélaginu. Fjárfesting í forvörnum sem styrkja heilsuna skilar sér margfalt til baka.Við leggjum áherslu á aðgengi að hreyfingu, forvörnum og fræðslu um gefandi lífsstíl. Við viljum tryggja aðgengilegar og hagkvæmar almenningssamgöngur. Einnig þarf að styrkja sérakstur og hanna öruggt og aðgengilegt nærumhverfi þar sem auðvelt og notalegter að njóta útivistar. 5. Skilvirk, gagnsæ og samþætt þjónusta Forgangsröðun þjónustu í samræmi við óskir eldri borgara tryggir betri nýtingu fjármuna. Við viljum samþætta heilbrigðis- og félagsþjónustu, draga úr tvíverknaði og setja skýr, mælanleg markmið um árangur. Sveitarfélög þurfa núna að taka meira tillit til aldurs íbúa Eldri borgarar eru ekki jaðarhópur. Þeim fjölgar hlutfallslega mest allra aldurshópa. Það er því mikilvægt að skapa leiðir til að nýta reynslu þeirra, þekkingu og vilja til þátttöku sem allra best. Með skilvirku íbúalýðræði og forgangsröðun verkefna í samræmi við óskir íbúa, verður reksturinn hagkvæmari. Við „eyðum“ peningum í lífsgæði sem skila sér í betra samfélagi fyrir alla íbúa sveitarfélaganna. Það er ætlunarverk Viðreisnar í sveitarstjórnum. Gefum Viðreisn tækifæri 16. maí til að stuðla að betri lífsgæðum í sveitarfélögum landsins. Höfundur er formaður í stjórn Öldungaráð Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar