„Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 13. maí 2026 20:29 Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var nýbúinn að skipta miðverði út af þegar hinn miðvörðurinn fékk rautt spjald. Anton Brink/Vísir Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks var ánægður með lærisveina sína eftir að þeir lögðu Þrótt úr Reykjavík að velli, 2-1, í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta á AVIS vellinum í Laugardal í kvöld. „
Mér líður mjög vel. Ég er mjög ánægður með strákana, ánægður með að vera kominn áfram í bikarnum. Þetta var snúinn leikur á móti góðu liði. Mér fannst við heilt yfir mjög flottir. Þeir ógnuðu lítið sem ekkert og við hefðum mögulega getað skorað tvö fyrir hálfleik. Svo náttúrlega breytist leikurinn aðeins í seinni hálfleik en mér fannst við gera þetta gríðarlega vel. Við lokuðum og kláruðum leikinn með stæl,“ sagði Ólafur Ingi við Vísi eftir leik. Miðvörðurinn Viktor Örn Margeirsson fékk beint rautt spjald fyrir groddaralega tæklingu á Erni Braga Hinrikssyni á 56. mínútu en aðeins mínútu áður hafði félagi Viktors Arnar í miðverðinum, Ívar Örn Árnason, farið af velli fyrir þriðja miðvörðinn, Ásgeir Helga Orrason. Óviljaverk en verðskuldað rautt spjald „Já, það var í raun búið að ákveða það í hálfleik að Ívar tæki fyrstu 5-10 mínúturnar í seinni og sjá hvernig hann hefði það. Hann fékk högg og var að bólgna upp. Tímapunkturinn hefði í rauninni ekki getað verið mikið verri! Hann hefði örugglega getað þjösnað sér í gegnum leikinn en svo bara mínútu seinna kemur rauða spjaldið. Þetta var óviljaverk hjá Viktori, hann rennur og lendir illa á leikmanninum. Þetta var verðskuldað rautt spjald en þetta var ekki ljót tækling að öðru leyti en að hann rennur til,“ sagði þjálfarinn. Breiðablik er fyrsta liðið í átta liða úrslit Mjólkurbikarsins og vilja vitanlega fara alla leið í keppninni. „Við erum með það á dagskránni að við viljum gera atlögu að öllum titlunum og bikarinn er eitthvað sem við horfum klárlega hýru auga til,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason við Vísi.
Mjólkurbikar karla Breiðablik Þróttur Reykjavík Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira