Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar 13. maí 2026 17:00 Rekstur sveitarfélagsins Rangárþings eystra á síðasta kjörtímabili hefur gengið vel og er það eitt af okkar aðaláherslumálum á komandi kjörtímabili að halda því áfram. Ábyrgur rekstur á að skila sér til fólks og fyrirtækja. Skattfé íbúa skal nýta vel í þeirra þágu í formi góðrar þjónusta, hóflegra álaga og lækkun gjalda. Þannig viljum við styðja við atvinnulífið og skapa svigrúm til að bæta innviði og lífsgæði í sveitarfélaginu. Á síðustu árum hefur samfélagsgerð og atvinna í okkar sveitarfélagi tekið miklum breytingum samhliða mikilli uppbyggingu í ferðaþjónustu. Í Rangárþingi eystra er dreifð búseta en um helmingur íbúa býr nú utan þéttbýlis. Landbúnaður er ein af okkar undurstöðu atvinnugreinum en náttúruperlur á svæðinu eru margar og fólk vill sækja þær heim. Það hefur reynst áskorun að koma til móts við fólksfjölgun á svæðinu með nægri innviðauppbyggingu til að tryggja bæði gestum, og ekki síður íbúum góða, þjónustu. Þar liggja einmitt mikil tækifæri fyrir Rangárþing eystra. Við getum byggt upp ferðaþjónustu sem styður við það sem fyrir er. Það þýðir að skipulag og uppbygging þurfa að taka mið af atvinnulífi svæðisins og lífsgæðum íbúa. Uppbygging á að styrkja samfélagið í heild. Ferðaþjónustan hefur þannig bein áhrif á lífsgæði íbúa ef rétt er haldið á málum, þar skapast meiri tekjur og þrýstingur á uppbyggingu innviða sem nýtist öllum. Öflugri samfélagsinnviðir svo sem betri vegir og bætt fjarskipti verða líklegri veruleiki þar sem atvinnulíf er kraftmikið. Við sjáum að víða þar sem samfélög vaxa og verða eftirsóknarverð skapast grundvöllur fyrir betri þjónustu og fjölbreyttari atvinnumöguleika fyrir íbúa. Það getur skipt sköpum fyrir ungt fólk og fjölskyldur sem vilja búa og starfa hvort sem er í dreifbýli eða þéttbýli. Atvinnulíf styrkir einnig rekstrargrundvöll verslana og þjónustufyrirtækja samhliða því að efla íþrótta- og menningarstarf. Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi þar sem landbúnaður, ferðaþjónusta og önnur starfsemi fá að dafna saman. Við eigum að taka jákvætt í ný tækifæri án þess að missa sjónar á þeim verðmætum og hefðum sem hafa byggt samfélagið upp til þessa. Sveitarfélagið þarf að þróast með nýjum aðstæðum. Við megum ekki festast í þeirri hugsun að allt eigi að vera eins og það var, en á sama tíma eigum við ekki að fórna því sem gerir samfélagið okkar einstakt. Verkefnið er að finna jafnvægið, að taka jákvætt í framfarir og atvinnuuppbyggingu meðal annars í gegnum skipulag á sama tíma og við stöndum vörð um rætur okkar, landbúnaðinn, samfélagsandann og lífsgæði íbúa. Ég er í 2.sæti D-listans í Rangárþingi eystra og óska eftir þínum stuðningi í komandi sveitarstjórnarkosningum þann 16.maí næstkomandi. Framtíðin þarf að byggjast á frelsi og ábyrgð þar sem að fólki er treyst til að skapa verðmæti. Í Rangárþingi eystra á ég rætur og þekki samfélagið vel. Ég brenn fyrir flestu er kemur að nær samfélaginu og nýt þess að ræða málin, en málefni dreibýlisins eru mér sérstaklega hugleikin. Með staðfestu, raunsæi og reynslu úr hinum ýmsu félagstörfum vil ég halda áfram að skapa samfélag í sókn. Höfundur skipar 2. sætið hjá D-listanum og öðrum lýðræðissinnum í Rangárþingi eystra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Rangárþing eystra Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar