Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur ræða þrjár nýjar herstöðvar á Grænlandi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. maí 2026 06:45 JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, fór í afar umdeilda heimsókn til Grænlands eftir að Trump hótaði að taka landið yfir, mögulega með valdi. Getty/Jim Watson Fulltrúar Bandaríkjanna og Danmerkur hafa fundað að minnsta kosti fimm sinnum á þessu ári til að ræða opnun þriggja nýrra herstöðva Bandaríkjahers á Grænlandi. BBC hefur eftir heimildarmönnum að viðræður gangi vel.
Samkvæmt BBC hefur verið rætt um að herstöðvarnar yrðu í suðurhluta landsins og að meginverkefni þeirra yrði eftirlit með svokölluðu GIUK-hliði milli Grænlands, Íslands og Bretlandseyja. Ein stöðin yrði líklega í Narsarsuaq, þar sem Bandaríkjamenn hafa áður haft herstöð, og hinar þar sem einhverjir innviðir eru fyrir, eins og flugvöllur eða höfn. Bandaríkjamenn eru sagðir hafa lagt til að herstöðvarnar verði formlega skilgreindar sem yfirráðasvæði Bandaríkjanna, það er að segja hluti af Bandaríkjunum. Michael Needham, háttsettur embættismaður innan bandaríska utanríkisráðuneytisins, er sagður fara fyrir viðræðunum fyrir hönd Bandaríkjanna. Samkvæmt BBC hefur honum verið falið að komast að samkomulagi sem uppfyllir kröfur Donald Trump Bandaríkjaforseta en virðir á sama tíma „rauðar línur“ Dana varðandi það að Grænland sé órjúfanlegur hluti Danaveldis. Jesper Møller Sørensen, sendiherra Danmerkur í Washington, og Jacob Isbosethsen, sendifulltrúi Grænlands, eru meðal þeirra sem hafa setið viðræðurnar fyrir hönd Dana og Grænlendinga. BBC hefur eftir þremur heimildarmönnum að Jeff Landry, ríkisstjóri Louisiana og sérlegur sendifulltrúi Trump í málefnum Grænlands, hafi ekki komið nálægt viðræðunum. Trump útnefndi Landry í sendifulltrúaembættið í kjölfar hótanna um að taka Grænland, mögulega með valdi. Bandaríkin reka sem stendur eina herstöð á Grænlandi en þær voru sautján þegar mest var á tímum kalda stríðsins.
Bandaríkin Donald Trump Grænland Danmörk Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Fleiri fréttir Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Sjá meira