Framsýni er besta vörnin fyrir Seltjarnarnes Garðar Gíslason skrifar 11. maí 2026 08:22 Loftslagsbreytingar eru nú þegar farnar að hafa áhrif á Seltjarnarnes. Nú þarf sveitarstjórn sem þorir að horfast í augu við stöðuna, grípa til forvarna og verja íbúa, eignir og innviði með markvissum aðgerðum. Loftslagsbreytingar eru ekki lengur eitthvað sem gerist einhvern tímann í framtíðinni. Við sjáum áhrif þeirra nú þegar í aukinni úrkomu, meiri úrkomuákefð, hækkandi sjávarstöðu og auknu álagi á innviði sem voru ekki hannaðir fyrir þær aðstæður sem nú blasa við. Á Seltjarnarnesi er þessi staða sérstaklega viðkvæm vegna láglendis og nálægðar við sjó. Seltjarnarnesi stafar því aukin hætta af sjávarflóðum, ofsaveðri og fráveituvanda sem getur valdið miklu tjóni á heimilum, mannvirkjum og umhverfi. Það er ekki ábyrg stjórnsýsla að bíða eftir næsta flóði eða bilun og vona að allt fari vel. Slík nálgun kostar meira þegar upp er staðið og bitnar fyrst og fremst á íbúunum sjálfum. Sveitarfélag sem sýnir raunverulega forystu undirbýr sig áður en skaðinn verður. Við viljum nýja nálgun þar sem forvarnir, framsýni og fagleg áhættustýring eru í forgrunni. Markmiðið er skýrt: að tryggja að samfélagið okkar verði betur í stakk búið til þess að mæta þeim breytingum sem þegar eru hafnar. Hættum að hugsa frá kjörtímabili til kjörtímabils Einn stærsti veikleiki í opinberri stefnumótun er skortur á langtímahugsun. Loftslagsvá og öryggi innviða verða ekki leyst með því að horfa aðeins til næstu ára eða næstu fjárhagsáætlunar. Ákvarðanir sem teknar eru í dag munu hafa áhrif á samfélagið okkar áratugum saman. Þess vegna viljum við að skipulag, hönnun innviða og stjórnsýsla bæjarins taki mið af langtíma loftslagsspám og þeirri þróun sem fram undan er. Við viljum vinna markvisst að forvörnum í samstarfi við sérfræðinga og stofnanir, þar á meðal Loftslagsþjónustu Veðurstofu Íslands og Vegagerðina. Mikilvægt er að ráðast í heildstætt áhættumat til að greina hvar innviðir bæjarins eru viðkvæmastir gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga. Það á meðal annars við um hitaveitu, fráveitu, vegakerfi og aðra lykilinnviði sem þurfa að standast aukið álag og áföll. Jafnframt þarf að fara yfir aðal- og deiliskipulag bæjarins þannig að skipulagið taki raunverulega mið af hækkandi sjávarstöðu og þörf fyrir öflugri sjóvarnir. Þar þarf að vera pólitískt þor til staðar. Það er hlutverk sveitarstjórnar að verja almannahagsmuni, ekki að loka augunum fyrir fyrirsjáanlegri þróun. Aðgerðaleysi er dýrasti kosturinn Alltof oft er talað um forvarnir eins og þær séu kostnaðarsamt aukaverkefni sem megi bíða. Raunin er þveröfug. Fjárfesting í forvörnum og framsýnu skipulagi er mun hagkvæmari en kostnaðurinn við endurtekið tjón, mengun, viðgerðir og röskun á daglegu lífi íbúa. Náttúruhamfaratjón er ekki eitthvað sem hverfur með því að fresta ákvörðunum. Það safnast upp, bæði fjárhagslega og samfélagslega. Seltjarnarnes er viðkvæmt strandsvæði þar sem byggð og innviðir liggja víða lágt og nærri fjöruborði. Fráveitukerfi bæjarins eru víðast hvar einföld og þarfnast verulegra endurbóta. Þetta er ekki smávægilegt viðfangsefni. Þetta er einn af lykilþáttum í öryggi sveitarfélagsins á næstu áratugum. Þess vegna þarf pólitísk forgangsröðun að endurspegla alvöru málsins. Fráveitan má ekki vera veikasti hlekkurinn Eitt mikilvægasta verkefni næstu ára er að ráðast í endurbætur og bæta viðnámsþol fráveitukerfis bæjarins gagnvart auknu álagi vegna breytinga í veðurfari. Núverandi staða er ekki nægilega traust gagnvart þeirri þróun sem við sjáum í veðurfari. Aukin úrkoma og aukin úrkomuákefð munu setja kerfin undir meira álag sem eykur hættu á bakflæði, skólpmengun og tjóni á heimilum fólks. Við viljum því hefja skipulagningu tvöfalds fráveitukerfis þar sem ofanvatn er aðskilið frá skólpi. Með því má draga verulega úr álagi á kerfið þegar aftakaúrkoma verður og minnka líkur á mengunarslysum og tjóni. Þetta er mikilvæg forvarnaraðgerð og grundvallarforsenda þess að bærinn ráði við áföll af þessu tagi. Við viljum einnig fjárfesta í nútímatækni til vöktunar á sjávarhæð og álagi á fráveitukerfi í rauntíma. Slík gögn geta skipt miklu máli þegar taka þarf hraðar ákvarðanir við aukið álag á innviði. Með bættri vöktun má styrkja spár, stytta viðbragðstíma og gera sveitarfélaginu kleift að grípa fyrr til aðgerða þegar hætta skapast. Nú þarf skýrar aðgerðir, ekki fleiri afsakanir Við viljum styrkja öryggi sveitarfélagsins með markvissum aðgerðum sem byggja á framsýni. Fyrsta skrefið er að framkvæma heildstætt áhættumat og leggja fram raunhæfa áætlun um aðlögunaraðgerðir í samstarfi við íbúa, sérfræðinga og hagaðila. Samhliða því þarf að halda áfram að endurnýja og styrkja fráveitukerfi bæjarins, meðal annars með auknum aðskilnaði ofanvatns og skólps til að draga úr hættu á bakflæði, mengun og tjóni þegar mikil úrkoma fellur á skömmum tíma. Jafnframt viljum við styrkja sjóvarnir og bæta vernd þeirra svæða þar sem byggð, innviðir og útivistarsvæði eru berskjölduð gagnvart sjávarflóðum og áhrifum öfgaveðurs. Sérstaka áherslu þarf að leggja á strandsvæði þar sem byggð liggur lágt og nærri fjöruborði. Einnig viljum við efla getu sveitarfélagsins til vöktunar og viðbragða með fjárfestingu í rauntímamælingum á sjávarhæð og álagi á fráveitukerfi. Með bættri yfirsýn og hraðari viðbrögðum má draga úr áhættu og styrkja viðnámsþol samfélagsins til framtíðar. Að lokum Öryggi Seltjarnarness verður ekki tryggt með því að bíða eftir næsta flóði. Það verður tryggt með framsýni, ábyrgð og pólitískum vilja til að grípa til aðgerða núna. Það er sú leið sem við viljum fara. Höfundur er gæðastjóri og skipar 8. sæti á lista Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra á Seltjarnarnesi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Seltjarnarnes Samfylkingin Viðreisn Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar