Ólafur Ingi hundfúll Kolbeinn Kristinsson skrifar 8. maí 2026 21:57 Ólafur Ingi var skiljanlega ekki sáttur með aðeins eitt stig á heimavelli gegn FH í kvöld Vísir Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, var langt frá því að vera sáttur eftir 3-3 jafntefli liðsins gegn FH í 6. umferð Bestu deildar karla á Kópavogsvelli í kvöld.
Breiðablik var 2-0 yfir í hálfleik og virtist vera með góð tök á leiknum en FH kom af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn. Hafnfirðingar skoruðu þrjú mörk á 20 mínútna kafla og komust í 3-2 áður en Blikar jöfnuðu úr vítaspyrnu. Aðspurður hvort leikmenn Breiðabliks hefðu talið sigur vísan í hálfleik sagði Ólafur Ingi að skilaboðin í hálfleik hefðu verið þveröfug. „Ef þú hefðir heyrt hálfleiksræðuna þá gekk hún mikið út á það að slaka ekki á heldur frekar að gefa í,“ sagði Ólafur Ingi. „Ég er bara hundfúll með að gera jafntefli hérna á heimavelli. Við vorum töluvert betri aðilinn í fyrri hálfleik og erum bara búin að koma okkur í góða stöðu í hálfleik.“ Ólafur sagði Breiðablik hafa brugðist illa við í upphafi síðari hálfleiks og boðið FH upp í dans. „Svo erum við bara barnalegir í seinni hálfleik og gerum mistök sem kosta okkur leikinn. Við byrjuðum að bjóða þeim upp á einhverja líflínu og þeir fengu orku í kjölfarið,“ sagði hann. FH minnkaði muninn snemma í síðari hálfleik, jafnaði úr vítaspyrnu og komst svo yfir. Það var ekki það sem Blikar lögðu upp með. „Þeir fá þetta víti og svo kemur annað mark í kjölfarið sem er í rauninni akkúrat öfugt við það sem við ætluðum okkur. Við ætluðum bara að drepa þennan leik og ekki bjóða þeim í neinn dans heldur bara klára þetta,“ sagði Ólafur. „En því miður þá vorum við bara barnalegir og sjálfum okkur ólíkir frá byrjun seinni hálfleiks og þangað til við lentum undir.“ Ólafur var skýr þegar hann var spurður hvort þetta væru tvö töpuð stig hjá Breiðabliki. „Já, klárlega. Við ætluðum okkur að vinna þennan leik og vorum í góðri stöðu til að klára hann. Við bara töpuðum þessum tveimur stigum,“ sagði Ólafur Ingi. „Við getum kennt sjálfum okkur um. Við þurfum að læra af því. Það er klárt.“
Besta deild karla FH Breiðablik Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira