„Allt aðrar kröfur um eitthvað sem er sprautað inn í líkamann“ Smári Jökull Jónsson skrifar 10. maí 2026 15:35 Rúna Hauksdóttir Hvanndal er forstjóri Lyfjastofnunnar. Lyfjastofnun Forstjóri Lyfjastofnunar segir að sprautunotkun á svokölluðum peptíðum sé sérstaklega varhugaverð og að fólk viti sjaldan hvað það sé í raun með í höndunum. Ólíklegt sé að kaupendur fái það sem það telur sig vera að kaupa.
Notkun á svokölluðum peptíðum virðist vera að aukast verulega hér á landi. Efnin eru oft seld á samfélagsmiðlum með fyrirheitum um meðal annars þyngdartap og fallegri húð og formaður félags heimilislækna tjáði sig um efnin í vikunni og sagði notkun þeirra geta haft óafturkræf áhrif á heilsu. Forstjóri Lyfjastofnunar segir um að ræða ólögleg lyf og í sumum tilfellum efni frá rannsóknarstofum. „Ef þú ert að versla lyf og þetta eru lyfseðilsskyld lyf þá verður þú náttúrulega að vera með lyfseðil. Þá bara í gegnum löglega afhendingarkeðju sem eru apótek eða netapótk sem hafa verið vottuð. Sölusíður utan apóteka eru bara ólöglegar ef það er verið að selja lyf,“ segir Rúna Hauksdóttir Hvannadal forstjóri Lyfjastofnunar. Varar sérstaklega við sprautunotkun Það virðist vera orðið viðurkennt að kaupa efni á netinu og sprauta því í sig að hennar mati. Fólk viti ekkert hvað það sé með í höndunum eða hvar efnið var framleitt. Sprautunotkun sé sérstaklega varasöm. „Af því að þá ertu bara komin með þetta beint inn í líkamann. Það þarf að gæta fyllsta hreinlætis og öryggis við framleiðslu á öllu sem þú sprautar í þig. Algjörlega óháð innihaldinu, það eru allt aðrar kröfur um eitthvað sem er sprautað inn í líkamann eða undir húð.“ „Ljóst að það er ekki þetta sem er verið að selja“ Þá sé það langt ferli að skrá lyf á markað og þá sé búið að gera ýmsar klínískar rannsóknir um virkni og aukaverkanir. „Það er verið að tala um þetta Retatrutide til dæmis og það hefur verið í sölu. Það er lyf sem er í klínískum fasa og það er nokkurn veginn algjörlega ljóst að það er ekki þetta sem er verið að selja.“ Staðan sé svipuð í nágrannalöndum og mikilvægt sé að vekja athygli á stöðunni. „Ragga Nagli var í viðtali um hvernig þetta er í Danmörku. Við vorum með sænskan fyrirlesara hjá okkur og Svíarnir eru að taka mjög hart á þessu og fylgjast með. Það sem er hættulegt er að fólk er að kaupa það sem það heldur að séu skráð lyf. Oft eru þetta þessi þyngdarstjórnunarlyf og þú veist ekkert hvað er í þessum pennum.“ Stofnunin hafi unnið með lögreglu og tollinum ef þannig ber undir. „Við fáum þetta oft til okkar, til að gefa faglegt álit, þegar er búið að handleggja eða eitthvað hefur komið upp. Við hvetjum alla til þess að tilkynna svona síður til lögreglu og sérstaklega ef þær eru hýstar hér á landi, þá er hægt að taka þær niður.“
Lyf Heilsa Útlit Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira