Garðabær er lifandi samfélag með aðlaðandi umhverfi, menningu og mannlíf Stella Stefánsdóttir skrifar 7. maí 2026 10:45 Garðabær hefur í gegnum tíðina byggst upp sem öflugt og aðlaðandi samfélag þar sem umhverfi, mannlíf og menning fara vel saman. Miðsvæði Garðabæjar hefur lengi verið byggt á samheldnu samfélagi sem hefur myndað skemmtilegan bæjarbrag. Á Álftanesi hefur einnig myndast sterkur staðarandi, þar sem náttúran og hefð fyrir samveru spila stórt hlutverk. Þá hefur uppbygging í Urriðaholti sýnt hvernig hægt er að þróa ný hverfi sem falla að heildinni og styrkja samfélagið í bænum enn frekar. Byggjum á sterkum grunni Meirihluti Sjálfstæðisflokks hefur lagt grunn að þessu góðu samfélagi með markvissri uppbyggingu innviða sem styðja við fjölbreytt líf. Íþrótta- og tómstundastarf hefur dafnað vel og sameinar marga íbúa, til dæmis í kringum leiki Stjörnunnar og Álftaness. Sundlaugar bæjarins hafa einnig fest sig í sessi sem mikilvægir samkomustaðir þar sem daglegt mannlíf blómstrar. Garðabær býður upp á einstaka möguleika til útivistar, með góðu aðgengi að fjölbreyttri náttúru allt árið um kring. Stígakerfi bæjarins hefur verið þróað áfram og lögð áhersla á að halda því aðgengilegu, meðal annars með góðum snjómokstri yfir vetrartímann. Leik- og útivistarsvæði hafa einnig verið efld, með áherslu á að allir íbúar, óháð aldri eða hreyfigetu, geti notið þeirra. Menningarlífið hefur einnig eflst jafnt og þétt. Viðburðir á borð við Jazzþorpið hafa vaxið og blómstrað. Um síðustu helgi nutu fjölmargir gestir þess að sækja hátíðina og tónlistarlífið í bænum er í sókn. Bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands hafa skapað sterkan menningarkjarna á Garðatorgi með fjölbreyttri starfsemi fyrir íbúa og gesti. Áframhaldandi uppbygging og skýr framtíðarsýn Fram undan er áframhaldandi uppbygging með það að markmiði að styrkja þessa jákvæðu þróun í bænum okkar enn frekar. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að leggja áherslu á að efla mannlíf og aðstöðu til samveru. Opnunartími sundlauga verður rýmkaður og áfram verður unnið að því að bæta aðstöðu til íþrótta og útivistar, meðal annars með fjölgun æfingasvæða, hreystitækja og áningarstaða. Einnig verður íbúum gert kleift að nota heita potta og infrarauðrarsaunu við Urriðaholtsskóla utan skólatíma. Uppbyggingu Miðgarðs og íþróttamannvirkja í Vetrarmýri verður haldið áfram og skipulagningu íþróttasvæðisins á Álftanesi verður lokið á komandi kjörtímabili. Þá viljum við efla vetrarútivist sérstaklega, til dæmis með gönguskíðaaðstöðu og sleðabrekkum, svo íbúar geti nýtt útivistarsvæðin enn betur allt árið um kring. Menningarlífið verður áfram í forgrunni. Sjálfstæðisflokkurinn vill styrkja Jazzþorpið enn frekar og ljúka stækkun tónlistarskólans. Þá viljum við bæta aðstöðu bókasafnsins og byggja upp nýtt samfélags- og viðburðarhús sem mun skapa vettvang fyrir fjölbreytta menningarstarfsemi. Þróun Garðatorgs heldur áfram með það að markmiði að efla verslun, þjónustu og mannlíf á svæðinu. Jafnframt stefnum við að því að lyfta Vífilsstaðasvæðinu og þróa það sem lifandi og heildstætt svæði þar sem menning, þjónusta og fallegt umhverfi fara saman. Sjálfstæðisflokkurinn mun áfram efla Garðabæ og skapa forsendur fyrir lifandi og aðlaðandi samfélagi þar sem fallegt umhverfi og fjölbreytt mannlíf skapa aukin lífsgæði fyrir íbúa. Höfundur er varabæjarfulltrúi og formaður umhverfisnefndar Garðabæjar, skipar 5. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Garðabær Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar