Sport

Vann silfur á veikari fæti en á­föllin dynja á Daníel

Sindri Sverrisson skrifar
Daníel Ingi Egilsson er Íslandsmethafi í langstökki en getur ekki keppt vegna þrálátra meiðsla í hné.
Daníel Ingi Egilsson er Íslandsmethafi í langstökki en getur ekki keppt vegna þrálátra meiðsla í hné. Vísir/Sigurjón

Það á ekki af Daníel Inga Egilssyni, Íslandsmethafa í langstökki, að ganga en þrálát meiðsli í hné gera að verkum að hann mun væntanlega ekki keppa neitt í sumar.

Þetta kemur fram í viðtali við Daníel á vef RÚV í dag þar sem hann fer yfir meiðslasögu sína síðasta árið. Hann glímir við það sem kallast „jumpers knee“, eða bólgur í sininni sem liggur yfir hnéð, sem gerir að verkum að Daníel getur ekki stokkið vegna verkja.

Sumarið 2024 hafði Daníel tvíbætt gamalt Íslandsmet Jóns Arnars Magnússonar, fyrst með 8,01 metra stökki og svo með stórglæsilegu 8,24 metra stökki. Skellurinn var því mikill síðasta sumar þegar meiðslin fóru að gera vart við sig og frekari bætingar ekki mögulegar, og illa hefur gengið fyrir Daníel að fá bót meina sinna sem ítrekað hefur fengið slæmar fréttir í leit sinni að bata.

Hann hefur þó reynt allt til þess að halda áfram að keppa og stökk til að mynda með veikari fætinum á Meistaramóti Íslands í ágúst í fyrra, og var aðeins tveimur sentímetrum frá gullverðlaunum en hlaut silfur. Þá keppti hann í 60 metra spretthlaupi á Reykjavíkurleikunum í byrjun þessa árs.

Oft hugsað um að hætta bara

En nú þegar ljóst er að Daníel missir til að mynda af Evrópumótinu í Birmingham í ágúst viðurkennir hann að hafa íhugað að láta gott heita í langstökki.

„Þetta er að sjálfsögðu búið að vera ótrúlega erfitt en maður reynir að halda jákvæðni í gegnum þetta allt saman. En upp á síðkastið hefur þetta verið hvað erfiðast og oft og tíðum hef ég hugsað bara að hætta. Það hefur verið gríðarlega erfitt að geta ekki gert það sem maður vill og elskar vegna sársauka og hvað þá þegar maður sér litlar framfarir,“ segir Daníel við RÚV. 

Hann bætir þó við að þó að erfitt sé að sjá heilt ár fara í vaskinn sé stefnan núna að komast inn á Ólympíuleikana í Los Angeles sem fram fara sumarið 2028, og að komast þar í úrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×