Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Lovísa Arnardóttir skrifar 5. maí 2026 18:34 Alma Möller heilbrigðisráðherra vill fjölga þeim sem eru eingöngu með börn sín á brjósti til sex mánaða aldurs. Vísir/Anton Brink Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið embætti landlæknis að leiða vinnu við mótun stefnu um brjóstagjöf á Íslandi.
Samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins hefur brjóstagjöf verið á hröðu undanhaldi hér á landi síðustu ár og eru nú aðeins um 25 prósent barna á brjósti eingöngu við sex mánaða aldur. Það er undir markmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. „Það er mikilvægt að gefa þessu máli gaum, því brjóstagjöf er mikilvægt lýðheilsumál og fyrir liggja staðreyndir um jákvæð áhrif brjóstagjafar á heilsu barna og mæðra,“ segir ráðherra í tilkynningu. Skorti heildstæða stefnu Þar kemur einnig fram að ákvörðun hennar byggist á upplýsingum þar sem sýnt er fram á að heildstæða stefnu vanti um brjóstagjöf, nauðsynlegt sé að endurskoða fyrirliggjandi leiðbeiningar hvað þetta varðar, bæta þurfi gagnasöfnun og jafna og samræma aðgengi að þjónustu. Embætti landlæknis muni því leiða stefnumótunarvinnuna í samvinnu við helstu hagaðila, þar á meðal fagfélög, heilbrigðisstofnanir og sérfræðinga á sviði brjóstagjafar. Í þeirri vinnu verði lögð áhersla á að bæta aðgengi að ráðgjöf og stuðningi við brjóstagjöf, samræma leiðbeiningar og verklag á landsvísu og efla fræðslu til foreldra og fagfólks. Í tilkynningu segir að alþjóðleg markmið geri ráð fyrir að árið 2030 verði hlutfall barna sem eru eingöngu á brjósti við 6 mánaða aldur um 60 prósent og er nýrri stefnu ætlað að styðja við þetta markmið. Gert er ráð fyrir að stefnan verði tilbúin og taki gildi í janúar 2027.
Börn og uppeldi Heilbrigðismál Matur Tengdar fréttir Vilja valdefla konur í brjóstagjöf Á dögunum kom út fyrsta íslenska bókin sem fjallar um brjóstagjöf. Í bókinni er að finna ýmis ráð við þekktum vandamálum, reynslusögur og skýringarmyndir. Höfundar bókarinnar eru Ingibjörg Eiríksdóttir Hildur A. Ármannsdóttir, Þórunn Pálsdóttir, Hulda Sigurlína Þórðardóttir og Hallfríður Kristín Jónsdóttir. Allar eru þær ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og brjóstagjafaráðgjafar. 2. mars 2025 07:01 Mikilvægt að skólar og stofnanir setji reglur um brjóstagjöf Stjórn félags brjóstagjafaráðgjafa segir mikilvægt að skólar og stofnanir setji reglur um brjóstagjöf. 1. febrúar 2024 08:00 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Innlent Fleiri fréttir Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Sjá meira
Vilja valdefla konur í brjóstagjöf Á dögunum kom út fyrsta íslenska bókin sem fjallar um brjóstagjöf. Í bókinni er að finna ýmis ráð við þekktum vandamálum, reynslusögur og skýringarmyndir. Höfundar bókarinnar eru Ingibjörg Eiríksdóttir Hildur A. Ármannsdóttir, Þórunn Pálsdóttir, Hulda Sigurlína Þórðardóttir og Hallfríður Kristín Jónsdóttir. Allar eru þær ljósmæður, hjúkrunarfræðingar og brjóstagjafaráðgjafar. 2. mars 2025 07:01
Mikilvægt að skólar og stofnanir setji reglur um brjóstagjöf Stjórn félags brjóstagjafaráðgjafa segir mikilvægt að skólar og stofnanir setji reglur um brjóstagjöf. 1. febrúar 2024 08:00