Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 4. maí 2026 13:04 Kári Sigurðsson er formaður Sameykis. vísir Formenn tveggja stéttarfélaga segja Reykjavíkurborg ítrekað víkja sér undan ábyrgð þegar starfsfólk borgarinnar verður fyrir tjóni í starfi. Það veki furðu að fulltrúar borgarinnar státi sig af því að vera leiðandi í mannauðsmálum þegar þeir sýni það ekki í verki.
Þetta kemur fram í grein sem formenn Sameykis og Eflingar skrifuðu á Vísi. Í greininni taka þeir dæmi um tvö nýleg mál þar sem heyrnartólum og fatnaði var stolið af vinnustað starfsmanns borgarinnar en sá fékk tjónið ekki bætt. Þá neituðu fulltrúar borgarinnar að bæta tjón starfsmanns neyðarskýlisins en í hans tilviki var 150 þúsund króna rafhlaupahjóli stolið úr læstu starfsmannarými. Atvikið náðist á öryggismyndavél og fullyrt að skjólstæðingur skýlisins hafi stolið hjólinu. Kári Sigurðsson, formaður Sameykis segir Reykjavíkurborg til fyrirmyndar hvað varðar margt en þessi mál séu borginni alls ekki til sóma. „Reykjavíkurborg, þau tryggja sig sjálf þannig þetta er þeirra verklag, Þetta eru þeirra reglur og túlkanir sem þau fara eftir í þessum málum. Maður er svolítið hissa að sjá hversu þröngar túlkanir og skilgreiningar þau setja á sínar eigin reglur. Maður veltir því fyrir sér eins og við gerum í greininni, fyrir hvern þessar reglur eru? Því þær eru ekki fyrir starfsfólkið og starfsumhverfið.“ Samskiptin gætu verið betri Sem veki furðu þar sem fulltrúar borgarinnar hafi státað sig af því að vera leiðandi afl í mannauðsmálum og kynntu nýverið nýja mannauðsstefnu með miklum fyrirheitum. „Undanfarna mánuði hafa þetta verið ákveðin vonbrigði hversu lítið hefur heyrst frá borginni í svona málum og í raun og veru fleiri málum þar sem maður hefur óskað eftir því að samskiptin væru betri.“ Verði að sýna metnað í verki Kári segir að hjá borginni starfi nefnd sem eigi að leysa úr slíkum ágreiningsmálum. „Sú nefnd hefur fundað afskaplega lítið á undanförnum mánuðum og kannski lítill vilji hjá borginni til þess að leysa þessi mál sem snúa að þessu félagsfólki.“ Pólitíkin þurfi að stíga inn í og liðka fyrir verklaginu. „Ef borgin ætlar að vera leiðandi afl í mannauðsmálum þá þarf að sýna það í verki og þau eru ekki að gera það í dag.“
Reykjavík Mannauðsmál Stéttarfélög Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Erlent Fleiri fréttir Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sjá meira