Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. maí 2026 06:39 Það er erfitt að átta sig á því hvar forsetinn stendur en færsla hans á Truth Social virðist jákvæðari en yfirlýsingar hans um helgina, þar sem hann velti því fyrir sér hvort Íranir hefðu goldið fortíðina nægilega dýru verði. Vísir/Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti tikynnti á samfélagsmiðlinum Truth Social í nótt að Bandaríkjamenn myndu „leiðbeina“ skipum sem setið hafa föst um Hormuz-sund. Segir hann um að ræða aðgerðir í þágu mannúðar og bendir réttilega á að áhafnir skipanna séu að verða uppiskroppa með mat og aðrar nauðsynjar.
Athygli vekur að hann segir umræddar áhafnir saklaus fórnarlömb „kringumstæða“ og að um sé að ræða góðviljaverk þeirra sem staðið hafa í átökum á svæðinu; Bandaríkjanna, Mið-Austurlanda og Íran. Aðgerðirnar muni fara fram undir yfirskriftinni „Project Freedom“. Trump segir einnig í færslunni að viðræður standi yfir sem gætu leitt til „jákvæðrar niðurstöðu fyrir alla“. Áætlað er að um 850 skip séu föst á Persaflóa en ekkert virðist fast í hendi um það hvernig umræddum aðgerðum til að koma þeim út um sundið verði háttað. Wall Street Journal hefur eftir embættismanni að það standi ekki til að herskip Bandaríkjahers fylgi þeim. Þá hafa stjórnvöld í Íran varað við því að þau muni túlka öll „afskipti“ Bandaríkjamanna á Hormuz-sundi sem brot gegn vopnahléinu sem nú er í gildi. Ráðamenn í Íran greindu einnig frá því í gær að þeim hefðu borist viðbrögð stjórnvalda vestanhafs við tillögum sem fyrrnefndu lögðu fram fyrir helgi varðandi samkomulag til að greiða fyrir opnun sundsins. Það liggur ekki fyrir hvort yfirlýsingar Trump um „frelsisaðgerðirnar“ tengist þessum þreifingum milli ríkjanna.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira