Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar 2. maí 2026 20:15 Nýleg ummæli Björns Brynjúlfs Björnssonar, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, um að verkalýðsfélög séu “tímaskekkja” kalla á viðbrögð. Þessi sjónarmið eru kannski ekki ný á nálinni en þau draga upp mynd sem stenst illa raunveruleikann á íslenskum og alþjóðlegum vinnumarkaði. Það er rétt að verkalýðshreyfingin stóð fyrir stórum og mikilvægum breytingum á 20. öldinni en það þýðir ekki að hlutverki hennar sé lokið. Þvert á móti og hefur hlutverkið þróast í takt við nýjar áskoranir vinnumarkaðarins; hraðari tæknibreytingar, aukin óvissa í störfum og aukin starfsþróun svo eitthvað sé nefnt. Í slíkum aðstæðum er þörfin fyrir sameiginlega rödd launafólks ekki minni, heldur meiri. Samanburður á vinnumarkaði Sviss og Portúgals kann að virðast einfaldur en hann er í raun villandi. Lífskjör og staða vinnumarkaðar ræðst ekki einungis af tilvist verkalýðsfélaga heldur einnig af framleiðni, menntun, atvinnugreinum og efnahagsstefnu. Það er því ósanngjarnt að setja fram þá ályktun að veikari verkalýðsfélög leiðitil betri kjara, því vinnumarkaðurinn byggir á samspili margra þátta og það að reyna að einfalda hann og merkja við einn þátt er einfaldlega rangt. Ef við horfum til þeirra hagkerfa sem hafa sem best jafnvægi á milli samkeppni og jafnaðar er myndin aðeins önnur en sú sem Björn málar upp. Norðurlöndin hafa byggt á nánu samstarfi verkalýðsfélaga, atvinnurekenda og stjórnvalda í áratugi. Þar tryggja kjarasamningar stöðugleika, aukinn kaupmátt og minni ójöfnuð en við sjáum í mörgum öðrum löndum. Þetta er ekki tilviljun heldur afrakstur markvissrar samvinnu aðila vinnumarkaðarins. Það er líka vert að spyrja; hvað tæki við höfum ef verkalýðsfélögin hyrfu? Því miður er staðan sú að einstaklingurinn stæði einn gagnvart vinnuveitanda sínum. Í einhverjum tilfellum gæti það gengið upp til skemmri tíma, en fyrir flesta myndi það þýða veikari samningsstaða, minni vernd og aukin óvissa. Sagan sýnir okkur það að réttindi launafólks eru ekki sjálfgefin, við þurfum ekki að líta langt til þess að sjá til dæmis 6 vikna fæðingarorlof fyrir mæður og engan rétt til fæðingarorlofs fyrir feður. Er það landið sem við viljum byggja? Land sem fer til baka í þróun, jafnrétti og réttindum á vinnumarkaði. Verkalýðsbaráttan hefur sögulega verið leiðandi afl í mannréttindarbaráttu og sýnt ríkistjórnum aðhald ásamt því að berjast fyrir hinum ýmsu málum sem varða til dæmis húsnæðismál og heilbrigðismál. Verkalýðshreyfingin þarf, líkt og samfélagið í heild sinni, að þróast og bregðast við nýjum aðstæðum. Það að afskrifa hana sem úrelta er einföldun og afstaða sem gerir lítið úr raunveruleika launafólks í dag. Verkalýðsfélögin eru ekki leifar fortíðar heldur eru þau hluti af réttlátum vinnumarkaði sem þjóna hagsmunum samfélagsins. Við megum aldrei sofna á verðinum og hætta að berjast fyrir bættari kjörum, þannig töpum við því sem nú þegar er unnið. Höfundur er varaformaður ASÍ-UNG Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Nýleg ummæli Björns Brynjúlfs Björnssonar, framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, um að verkalýðsfélög séu “tímaskekkja” kalla á viðbrögð. Þessi sjónarmið eru kannski ekki ný á nálinni en þau draga upp mynd sem stenst illa raunveruleikann á íslenskum og alþjóðlegum vinnumarkaði. Það er rétt að verkalýðshreyfingin stóð fyrir stórum og mikilvægum breytingum á 20. öldinni en það þýðir ekki að hlutverki hennar sé lokið. Þvert á móti og hefur hlutverkið þróast í takt við nýjar áskoranir vinnumarkaðarins; hraðari tæknibreytingar, aukin óvissa í störfum og aukin starfsþróun svo eitthvað sé nefnt. Í slíkum aðstæðum er þörfin fyrir sameiginlega rödd launafólks ekki minni, heldur meiri. Samanburður á vinnumarkaði Sviss og Portúgals kann að virðast einfaldur en hann er í raun villandi. Lífskjör og staða vinnumarkaðar ræðst ekki einungis af tilvist verkalýðsfélaga heldur einnig af framleiðni, menntun, atvinnugreinum og efnahagsstefnu. Það er því ósanngjarnt að setja fram þá ályktun að veikari verkalýðsfélög leiðitil betri kjara, því vinnumarkaðurinn byggir á samspili margra þátta og það að reyna að einfalda hann og merkja við einn þátt er einfaldlega rangt. Ef við horfum til þeirra hagkerfa sem hafa sem best jafnvægi á milli samkeppni og jafnaðar er myndin aðeins önnur en sú sem Björn málar upp. Norðurlöndin hafa byggt á nánu samstarfi verkalýðsfélaga, atvinnurekenda og stjórnvalda í áratugi. Þar tryggja kjarasamningar stöðugleika, aukinn kaupmátt og minni ójöfnuð en við sjáum í mörgum öðrum löndum. Þetta er ekki tilviljun heldur afrakstur markvissrar samvinnu aðila vinnumarkaðarins. Það er líka vert að spyrja; hvað tæki við höfum ef verkalýðsfélögin hyrfu? Því miður er staðan sú að einstaklingurinn stæði einn gagnvart vinnuveitanda sínum. Í einhverjum tilfellum gæti það gengið upp til skemmri tíma, en fyrir flesta myndi það þýða veikari samningsstaða, minni vernd og aukin óvissa. Sagan sýnir okkur það að réttindi launafólks eru ekki sjálfgefin, við þurfum ekki að líta langt til þess að sjá til dæmis 6 vikna fæðingarorlof fyrir mæður og engan rétt til fæðingarorlofs fyrir feður. Er það landið sem við viljum byggja? Land sem fer til baka í þróun, jafnrétti og réttindum á vinnumarkaði. Verkalýðsbaráttan hefur sögulega verið leiðandi afl í mannréttindarbaráttu og sýnt ríkistjórnum aðhald ásamt því að berjast fyrir hinum ýmsu málum sem varða til dæmis húsnæðismál og heilbrigðismál. Verkalýðshreyfingin þarf, líkt og samfélagið í heild sinni, að þróast og bregðast við nýjum aðstæðum. Það að afskrifa hana sem úrelta er einföldun og afstaða sem gerir lítið úr raunveruleika launafólks í dag. Verkalýðsfélögin eru ekki leifar fortíðar heldur eru þau hluti af réttlátum vinnumarkaði sem þjóna hagsmunum samfélagsins. Við megum aldrei sofna á verðinum og hætta að berjast fyrir bættari kjörum, þannig töpum við því sem nú þegar er unnið. Höfundur er varaformaður ASÍ-UNG
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun