Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar 2. maí 2026 19:00 Aðstoð við börn með taugafjölbreytileika (e. neurodiversity), en ADHD, einhverfa, og lesblinda falla undir þessa skilgreiningu, er virkilega ábótavant á Íslandi. Það er margfalt ódýrara fyrir samfélagið að aðstoða börn strax sem upplifa vanlíðan, eiga erfitt með nám, eða eru utanvelta í samfélaginu. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að þau flosni upp úr námi og einangrist félagslega. Andlega vanlíðan og einmannaleiki meðal barna og fullorðinna er að aukast; stór hluti landsmanna sem eru á örorkubótum þjást af andlegri vanlíðan. Fyrir ekki svo löng voru hér háværar umræður um ofgreiningar og mikla lyfjanotkun Íslendinga við ADHD, samanborið við aðrar Evrópuþjóðir. Taugafjölbreytileiki er að einhverju leiti arfgengur, og því ekki skrítið að stór hluti landsmanna séu með athyglisbrest, ofvirkni, eða á einhverfu rófinu, enda eru flestir Íslendingar sem rekja rætur sínar til Landnámsmanna skyldir. Taugafjölbreytileiki er hluti af okkar genamengi og því ber að taka alvarlega. Það þarf að mæta börnum strax sem bera þess merki að vera með ADHD, einhverfu eða lesblindu. Eins og staðan er núna er biðtími eftir greiningu að minnsta kosti 34 mánuðir. Þrjú ár. Þá er ekki tekinn með tíminn sem tekur að fá sálfræðing á vegum sveitafélags eða skólans til að gera forgreiningu og senda beiðni áfram til geðheilsumiðstöðvar. Þegar greining er komin upplifa margir eins og ekkert taki við til að aðstoða börnin, annað en möguleg lyfjagjöf ef börnin eru svo heppin að komast að hjá lækni sem hefur leyfi til að ávísa lyf við taugafjölbreytileika. Þessi börn þurfa oft á aðstoð sálfræðinga og talmeinafræðinga að halda, og að fá aðstoð með félagsfærni. Skólar og sveitarfélög veita iðulega ekki slíka aðstoð og því þurfa foreldrar að sækja þess aðstoð utan skólans. Tími hjá barnasálfræðingum í dag kostar um 25.000 kr og félagsfærninámskeið frá 80.000-200.000 kr. Allt þetta eykur álag á foreldra gríðarlega því það þarf að sækja þessa þjónustu á vinnutíma, mögulega í öðru sveitarfélagi og kostnaður getur haft verulega áhrif á fjárhagslegt öryggi fjölskyldna. Við þurfum að fjárfesta í framtíð barnanna okkar. Aðstoða þau strax, ekki eftir nokkur ár. Við búum í velferðarsamfélagi hér á Íslandi. Okkur ber skylda að aðstoða börnin okkar. Við þurfum að bjóða upp á ókeypis sálfræðiþjónustu, félagsfærnikennslu, og talmeinaþjónustu innan skóla fyrir börn með taugafjölbreytileika, og efla fræðslu fyrir bæði kennara og nemendur um taugafjölbreytileika til að auka skilning. Mikið af klárasta og mest skapandi fólki heimsins er með taugafjölbreytileika, og eru því allir vegir færir ef að réttu tólin eru til staðar. Við fjölskyldan höfum búið í ESB landi og vitum því vel að það er hægt að gera betur. Höfundur er varaþingmaður Viðreisnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Börn og uppeldi Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar