Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Birgir Olgeirsson skrifar 24. apríl 2026 11:52 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku og loftslagsmálaráðherra. Vísir/Anton Brink Raforkureikningur meðalstórs kúabús gæti lækkað um 400 til 500 þúsund krónur á ári verði frumvarp um jöfnun raforkukostnaðar samþykkt á Alþingi. Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax 1. júlí verði frumvarpið að lögum.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti fyrir málinu á Alþingi í vikunni. Markmiðið er að draga úr þeim kerfislæga mun sem hefur verið á dreifingarkostnaði raforku eftir búsetu og færa hann nær því að vera sambærilegur um allt land. „Ef frumvarpið verður samþykkt þá þýðir það að þann 1. júlí næstkomandi lækkar raforkureikningurinn strax í hinum dreifðu byggðum. Heimilin munu finna fyrir þessu en kannski ekki síður atvinnustarfsemin. Ég held að ávinningurinn sé einna mestur hjá bændum og fyrir ýmsa atvinnustarfsemi, fyrir gististaði, líka fyrir húsnæði í eigu sveitarfélaga, fyrir skóla til dæmis,“ segir Jóhann Páll. Í núverandi kerfi er kostnaður við dreifingu raforku aðeins jafnaður að hluta, sem hefur leitt til þess að notendur utan þéttbýlis greiða hærra verð fyrir sömu þjónustu. Með breytingunum er stefnt að því að draga verulega úr þeim mun með bæði lagabreytingum og útfærslu í reglugerðum. „Í staðinn fyrir að vera að jafna dreifikostnaðinn á bilinu 50–60 prósent þá förum við upp í 90–100 prósent,“ segir hann. „Þannig að markmiðið er að fulljafna dreifingarkostnað raforku milli þéttbýlis og dreifbýlis og lækka strax orkureikninginn.“ Áhrifin eru mest þar sem raforkunotkun er umfangsmikil og kostnaðurinn vegur þungt í rekstri. Það á við um hefðbundinn landbúnað en einnig vaxandi ferðaþjónustu í dreifbýli þar sem orka er stór þáttur í daglegum rekstri. „Fyrir dæmigert kúabú, þá eru þetta einhverjir tugir þúsunda í hverjum mánuði. Og það þýðir auðvitað betri rekstrarskilyrði landbúnaðar, betri rekstrarskilyrði ferðaþjónustu í dreifbýli,“ segir Jóhann Páll. Hann segir breytingarnar snúa að grundvallarsýn um hvernig eigi að nýta sameiginlegar auðlindir og dreifa ávinningi þeirra. „Við viljum skapa jöfn búsetuskilyrði hérna í landinu. Þetta er mjög stórt byggðamál að tryggja betri rekstrarskilyrði í dreifbýli og í raun ótrúlegt að þetta hafi ekki verið gert fyrr,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson.
Orkumál Landbúnaður Ferðaþjónusta Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira