10 loforð til ungs fólks á besta stað í heimi, Hafnarfirði Viktor Pétur Finnsson skrifar 22. apríl 2026 14:17 Hafnarfjörður er besti staður í heimi. Hér sameinast sterkt samfélag, öflug þjónusta, frábært íþrótta- og menningarlíf, stutt í náttúruna og einstakur bæjarandi sem finnst hvergi annarsstaðar. En þó staðan sé góð eigum við alltaf að stefna hærra. Undanfarin ár hefur Hafnarfjörður tekið miklum framförum. Mikið líf hefur færst í bæinn, hann verið gerður fallegri og þjónustan við íbúana batnað. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók við stjórn bæjarins árið 2014 var skuldahlutfall bæjarins um 220%. Í dag hefur það lækkað niður í um 130%. Rekstur bæjarins hefur styrkst, þjónusta verið efld og uppbygging aukist. Það skiptir máli. Því þegar fjármál eru í lagi skapast svigrúm til að bæta þjónustu, byggja upp innviði og létta byrðar heimilanna. Á sama tíma hefur álagningarhlutfall fasteignaskatts verið lækkað og Hafnarfjörður mælist nú í fremstu röð sveitarfélaga landsins í þjónustu við íbúa samkvæmt könnunum Gallup. Ánægja með bæinn sem búsetustað mælist 91% og hefur hækkað um tugi prósenta frá því að vinstrimenn voru hér við stjórn. Þetta gerist ekki af sjálfu sér. Þetta er árangur ábyrgðar, skýrrar forystu og forgangsröðunar sem setur íbúana í fyrsta sæti. Við megum heldur ekki gleyma því að staðan var önnur áður. Við höfum séð hvað gerist þegar skuldir hlaðast upp og rekstur veikist því Hafnfirðingar vilja ekki fara aftur þangað. Það þarf fólk sem styður við menningu, fjölskyldur og íþróttastarf, eykur þjónustu í þágu íbúana á sama tíma og skuldir eru lækkaðar og bærinn er rekinn vel. Þetta er hægt, og sjálfstæðismenn hafa sýnt það. Því þurfum við núna að taka næsta skref sem snýst um framtíð unga fólksins í bænum. Hér eru 10 loforð mín til ungs fólks í Hafnarfirði: 1. Lægra útsvar, meira eftir í vasanum Við ætlum að lækka útsvar bæjarins svo launafólk fái stærri hluta eigin tekna til ráðstöfunar. Þegar bænum er vel stjórnað eiga íbúarnir að njóta þess. Meiri peningur fyrir þig. 2. Fyrsta íbúð í Hafnarfirði Við ætlum að halda áfram uppbyggingu hagkvæmra íbúða, fjölga lóðum og skapa fleiri tækifæri fyrir fyrstu kaupendur. Ungt fólk á að geta keypt sína fyrstu íbúð í eigin bæ en ekki þurfa að flytja annað til að byrja lífið. Lífið er hér. 3. Leikskólapláss fyrr og sterkari stuðningur Markmiðið er að bjóða upp á leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Þar til því marki er náð viljum við hækka heimgreiðslur upp í 250.000 krónur á mánuði fyrir foreldra sem bíða eftir plássi. 4. Öflugri samgöngur Við viljum efla samgöngur innanbæjar með tíðari strætóferðum og betra leiðarkerfi. Frítt í strætó fyrir yngri en 18 ára og áframhaldandi næturstrætó fyrir þá sem villast til Reykjavíkur og þurfa að komast heim. 5. Bestu íþróttafélög landsins Við ætlum áfram að styðja allt það öfluga íþróttastarf sem gerir Hafnarfjörð að fyrirmyndarbæ í íþróttum. Markmiðið er einfalt,fleiri bikarar í bæinn. 6. Nýtt menningarhús í Strandgötu Við ætlum að breyta íþróttahúsinu við Strandgötu í nýtt menningar- og leikhús í hjarta bæjarins þar sem tónlist, leikhús og skapandi greinar fá að blómstra. Gamalt hús fær nýtt líf. 7. Fyrsta sætið í þjónustu Við erum komin í fremstu röð sveitarfélaga landsins þegar kemur að ánægju með þjónustu meðal íbúa en nú mælumst við í öðru sæti. Nú ætlum við alla leið og gera Hafnarfjörð að bestasveitarfélagi Íslands. 8. Opið lengur í sund og betri aðstaða Við viljum lengri opnunartíma í sundlaugum bæjarins, halda áfram uppbyggingu og viðhaldi eigna bæjarins og klára útisvæðið við Ásvallalaug. Það á að vera hægt að skella sér í pottinn þegar dagurinn loksins róast. 9. Meira líf og meira gaman Við viljum gera það meira aðlaðandi að skemmta sér í Hafnarfirði, efla miðbæinn með fleiri veitingastöðum og skemmtistöðum og efla næturlífið innan bæjarins. Skoða möguleika á keiluhöll eða bíói. Það á ekki alltaf að þurfa að fara annað til að hafa gaman. 10. Framtíð fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Við viljum að ungt fólk geti séð framtíð sína hér, í námi, starfiog lífi. Hafnarfjörður á að vera bær tækifæranna. Kosningar snúast um val. Um það hvort við höldum áfram á þeirri leið sem hefur skilað árangri eða tökum skref aftur á bak.Við skulum ekki breyta breytinganna vegna. Ég vil halda áfram að byggja upp bæ sem er fjárhagslega sterkur, fjölskylduvænn, metnaðarfullur og skemmtilegur. Hafnarfjörður er besti staður í heimi. Nú skulum við gera hann enn betri. Höfundur er frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun