Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 0-0 | Litlaust í fyrsta grasleiknum Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 22. apríl 2026 20:00 Breiðabliki tókst ekki að skora gegn nýliðum Keflavíkur. Vísir/Guðmundur Breiðablik gerði markalaust jafntefli við nýliða Keflavíkur er liðin mættust í Keflavík í fyrsta grasleik tímabilsins í Bestu deildinni í fótbolta. Markalaust á HS orku vellinum. Leikur sem fer seint í sögubækur fyrir gott skemmtanagildi. Breiðablik gerði markalaust jafntefli við nýliða Keflavíkur er liðin mættust í Keflavík í fyrsta grasleik tímabilsins í Bestu deildinni í fótbolta. Markalaust á HS orku vellinum. Leikur sem fer seint í sögubækur fyrir gott skemmtanagildi. Gestirnir frá Kópavogi áttu upphafssparkið og fyrsta hálffæri leiksins eftir tvær mínútur þegar Kristófer Ingi Kristinsson renndi boltanum fyrir markið í hlaup hjá Davíð Ingvarssyni en Ásgeir Orri Magnússon var mættur út á móti að loka. Keflavík átti flotta spilkafla og voru að ógna Breiðablik en þó án þess að skapa sér alvöru færi. Breiðablik á móti átti í töluverðu brasi með að halda í boltann á móti öflugri pressu frá heimamönnum. Breiðablik bitu aðeins frá sér undir lok fyrri hálfleiks en marktækifæri Kristófers Inga Kristinssonar og Davíðs Ingvarssonar rötuðu ekki á rammann. Eftir heldur tíðindarlítinn fyrri hálfleik var staðan markalaus í hálfleik. Gestirnir byrjuðu seinni hálfleikinn á flottu færi frá Jónatan Guðna Arnarssyni en hann átti gott skot sem fór rétt framhjá strax í upphafi seinni. Leikurinn var í járnum lengst af í seinni hálfleik og bæði lið skiptust á því að koma sér í ágætis stöður þó án þess að skapa sér alvöru marktækifæri úr því. Þegar flautað var til leiksloka var staðan markalaus og fóru liðin heim með sitthvort stigið á haus. Atvik leiksins Lokaflautið var hápunkturinn í kvöld. Þessi leikur verður ekki endursýndur á mörgum heimilum landsmanna í bráð. Stjörnur og skúrkar Davíð Helgi Aronsson var öflugur í öftustu línu Keflavíkur og fær hrós fyrir það. Skúrkarnir eru kannski sóknarmenn liðana að bjóða okkur ekki upp á einhver alvöru færi í leiknum en þeir komust oft í góðar stöður. Dómararnir Sigurður Hjörtur Þrastarson var á flautunni í kvöld og honum til aðstoðar voru Patrik Freyr Guðmundsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson. Ekki erfiður leikur að dæma og komst teymið bara vel frá sínu. Stemingin og umgjörð Það var nóg af sætum í stúkunni í kvöld. Heyrðist lítið í stúkunni Keflavíkurmeginn framan af en heyrðist þó aðeins í Blikum. Hefði verið skemmtilegra að sjá fleiri andlit í stúkunni en fullt hrós á þau sem mættu. Viðtöl Haraldur Guðmundsson þjálfari KeflavíkurVíkurfréttir „Verðum að gera þennan völl að okkar vígi“ „Erfiður völlur, apríl á grasi og svona varla tilbúin“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir leik í kvöld. „Mér fannst við spila vel á aðstæðurnar. Við töluðum um það að vera kannski ekki í miklu smá spili og koma boltanum snemma inn í teig og láta okkar fremstu menn snemma í vinnu“ „Fá boltann inní og vinna seinni bolta og annan bolta og mér fannst við gera það mjög vel en vantaði kannski svona herslumuninn að skapa meiri færi og opna sénsa“ „Heilt yfir ánægður með strákana og þeir lögðu sig alla í þetta og voru baráttuglaðir og voru tilbúnir að vinna fyrir hvorn annan og uppskeran er eitt stig. Það er kannski ásættanlegt“ Það voru ekki endilega margir sem sáu fyrir sér að Keflavík myndi ná einhverju úr þessum leik. „Breiðablik eða hvaða lið sem kemur hingað. Við bara ætlum að vinna alla leiki hvort sem að það sé hér eða út. Við förum í alla leiki til þess að vinna þá“ „Sérstaklega hérna heima. Við verðum að gera þennan völl að okkar vígi og við þurfum á heimavelli að ná í þessi stig“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson. Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks.Guðmundur/Vísir „Erum vanir því að vera á gervigrasi þar sem boltinn flýtur hraðar“ „Erum auðvitað pínu svekktir að vinna ekki þennan leik“ sagði Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks eftir leik í kvöld. „Við vorum svolítið lengi í gang. Við vorum lengi að finna völlinn og vorum aðeins að spila okkur í smá klandur hérna í byrjun leiks“ „Mér fannst við virkilega góðir í seinni hálfleik svona miðað við aðstæður. Við sköpum 1-2 góð færi og svo fullt af stöðum þar sem að við getum gert miklu mun betur í og getum skapað dauðafæri en við tökum vitlausar ákvarðanir kannski og færið rennur þá út í sandinn“ Breiðablik hefur verið gangrýnt í upphafi móts fyrir stirðan sóknarleik og þær raddir verða eflaust ekki minni eftir leikinn í kvöld. „Meiri kannski ákvörðunartaka heldur en gæðaleysi. Ekki það að það sé nein afsökun en vallaraðstæður, þær spila inn í. Það er ekkert auðvelt að spila á þessum velli þó svo að hann sé ágætur“ „Við erum vanir því að vera á gervigrasi þar sem boltinn flýtur hraðar. Við eigum að geta gert betur en mér fannst við samt vera bara flottir í seinni hálfleik“ sagði Ólafur Ingi Skúlason.
Besta deild karla Keflavík ÍF Breiðablik Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira