Sterkari saman Sindri S. Kristjánsson skrifar 22. apríl 2026 08:50 Á laugardaginn, þegar sléttar fjórar vikur voru til kosninga, kynntum við í Samfylkingunni á Akureyri stefnuskrána okkar og kosningaáherslur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Áherslurnar eru afrakstur vinnu listans, sem samanstendur af 22 öflugum og ólíkum einstaklingum, samtali við íbúa, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök um hvernig við byggjum bæinn okkar til framtíðar. Við höfum jafnaðarstefnuna að leiðarljósi í okkar stefnu og trúum því að sterkt samfélag sé samfélag þar sem við tökum ábyrgð hvert á öðru. Við viljum létta bæjarbúum daglega lífið og hafa þarfir íbúa ávallt í fyrirrúmi í allri ákvarðanatöku. Byggt á stefnuskránni leggjum við nú fram fimm áherslumál sem munu verða í forgrunni í ákvarðanatöku okkar á næsta kjörtímabili: Léttum þér daglega lífið Við ætlum að bjóða upp á sumarfrístund fyrir börn á yngsta stigi grunnskóla, setja þak á leikskólagjöld og draga úr skutli með því að gera strætó að raunverulegum valkosti fyrir unga sem aldna með nýju leiðarkerfi og tíðari ferðum. Hlúum að hverju barni Styttum biðlista barna, fáum sérfræðinga inn í skólana strax, bætum starfsumhverfi leik- og grunnskóla, sem og húsnæðismálin, og leyfum kennurum að kenna. Húsnæði, húsnæði, húsnæði Styttum biðlista eftir félagslegu húsnæði og tryggjum að í öllu nýju skipulagi sé gert ráð fyrir 35% óhagnaðardrifinni uppbyggingu. Áhyggjulaust - og skemmtilegt - ævikvöld Byggjum almennilega félagsaðstöðu fyrir eldra fólk, samþættum þjónustu og stuðlum að því að kerfin vinni betur saman og bjóðum 70 ára og eldri frítt í sund. Akureyri í sókn Mótum atvinnu- og vaxtaplan fyrir bæinn og ráðumst í aðgerðir, stöndum af alvöru með fyrirtækjunum okkar og byggjum Akureyri upp sem heilsársáfangastað með betri miðbæ og meira lífi. Við erum spennt fyrir framtíð Akureyrar og hlökkum til að eiga samtal við bæjarbúa um þessa framtíðarsýn á næstu vikum. Við hvetjum áhugasama til að kynna sér stefnuna okkar alla á vefsíðunni okkar, www.xs.is/akureyri. Samfylkingin á Akureyri er tilbúin til verka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Samfylkingin Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Sjá meira
Á laugardaginn, þegar sléttar fjórar vikur voru til kosninga, kynntum við í Samfylkingunni á Akureyri stefnuskrána okkar og kosningaáherslur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Áherslurnar eru afrakstur vinnu listans, sem samanstendur af 22 öflugum og ólíkum einstaklingum, samtali við íbúa, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök um hvernig við byggjum bæinn okkar til framtíðar. Við höfum jafnaðarstefnuna að leiðarljósi í okkar stefnu og trúum því að sterkt samfélag sé samfélag þar sem við tökum ábyrgð hvert á öðru. Við viljum létta bæjarbúum daglega lífið og hafa þarfir íbúa ávallt í fyrirrúmi í allri ákvarðanatöku. Byggt á stefnuskránni leggjum við nú fram fimm áherslumál sem munu verða í forgrunni í ákvarðanatöku okkar á næsta kjörtímabili: Léttum þér daglega lífið Við ætlum að bjóða upp á sumarfrístund fyrir börn á yngsta stigi grunnskóla, setja þak á leikskólagjöld og draga úr skutli með því að gera strætó að raunverulegum valkosti fyrir unga sem aldna með nýju leiðarkerfi og tíðari ferðum. Hlúum að hverju barni Styttum biðlista barna, fáum sérfræðinga inn í skólana strax, bætum starfsumhverfi leik- og grunnskóla, sem og húsnæðismálin, og leyfum kennurum að kenna. Húsnæði, húsnæði, húsnæði Styttum biðlista eftir félagslegu húsnæði og tryggjum að í öllu nýju skipulagi sé gert ráð fyrir 35% óhagnaðardrifinni uppbyggingu. Áhyggjulaust - og skemmtilegt - ævikvöld Byggjum almennilega félagsaðstöðu fyrir eldra fólk, samþættum þjónustu og stuðlum að því að kerfin vinni betur saman og bjóðum 70 ára og eldri frítt í sund. Akureyri í sókn Mótum atvinnu- og vaxtaplan fyrir bæinn og ráðumst í aðgerðir, stöndum af alvöru með fyrirtækjunum okkar og byggjum Akureyri upp sem heilsársáfangastað með betri miðbæ og meira lífi. Við erum spennt fyrir framtíð Akureyrar og hlökkum til að eiga samtal við bæjarbúa um þessa framtíðarsýn á næstu vikum. Við hvetjum áhugasama til að kynna sér stefnuna okkar alla á vefsíðunni okkar, www.xs.is/akureyri. Samfylkingin á Akureyri er tilbúin til verka.
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar