Fótbolti

Viðar lagði upp mark í öruggum sigri á KFUM-liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viðar Ari Jónsson átti þátt í marki í dag.
Viðar Ari Jónsson átti þátt í marki í dag. Sandefjord

Viðar Ari Jónsson og félagar í Hamarkameratene unnu öruggan 4-0 sigur á KFUM.

HamKam komst í 2-0 í fyrri hálfleik eftir að hafa fengið tvær vítaspyrnur sem Henrik Udahl skoraði úr á 24. og 41. mínútu.

Þegar seinna vítið var dæmt fékk Sander Sjökvist hjá KFUM einnig rauða spjaldið og HamKam var því manni fleiri í meira en fimmtíu mínútur.

Viðar Ari lagði upp þriðja markið fyrir Senegalann Mame Alassane Niang á 50. mínútu.

Niang átti eftir að bæta við sínu öðru marki á 81. mínútu en hann er aðeins tvítugur.

Viðar spilaði sem hægri bakvörður en var tekinn af velli á 73. mínútu.

HamKam vann í fyrstu umferðinni en hafði síðan tapað tveimur leikjum í röð. Þessi sigur kemur liðinu upp í níunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×