Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 18. apríl 2026 11:01 Dario Amodei er forstjóri Anthropic. Getty Fulltrúar Hvíta hússins funduðu með forstjóra gervigreindarfyrirtækisins Anthropic sem hefur lögsótt ákvörðun varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Anthropic hefur birt nýja gervigreind sem er umtalsvert öflugri en núverandi tækni.
Í síðustu viku kynnti Anthropic til sögunnar Claude Mythos, nýtt gervigreindarlíkan, sem ákveðið var að gera ekki aðgengilegt almenningi þar sem afleiðingarnar gætu orðið geigvænlegar. Kerfið hafi fundið yfir þúsund veikleika og öryggisbresti í sumum þekktustu stýrikerfum og vöfrum heims. Þess í stað ákvað Anthropic að gefa fjörutíu tæknirisum aðgang að forritinu til að gera þeim kleift að tryggja hugbúnað sinn fyrir mögulegum tölvuárásum. Viku síðar fundaði Dario Amodei, forstjóri Anthropic, með Scott Bessent fjármálaráðherra og Susie Wiles, starfsmannastjóra Donalds Trump í Hvíta húsinu. „Við ræddum tækifæri til samvinnu og ræddum nálganir og siðareglur til að takast á við áskoranir sem fylgja því að stækka þessa tækni,“ sagði Hvíta húsið samkvæmt BBC. Fundurinn kemur á óvart þar sem Anthropic hefur átt í erjum við bandarísk stjórnvöld. Eftir að Amodei neitaði að undirrita samstarfssamning við varnarmálaráðuneytið um notkun Pentagon á vöru Anthropic. Hann sagðist ekki getað undirritað samninginn með góðri samvisku þar sem í honum fælist heimild Pentagon til að nota gervigreindina í að fylgjast með íbúum Bandaríkjanna og búa til sjálfvirk vopn knúin af gervigreind. Vegna þessa skilgreindi Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fyrirtækið sem áhættu í framboðskeðjunni. Það þýðir að tæknin er ekki talin nægilega örugg til notkunar hjá hinu opinbera. Það var í fyrsta skipti sem bandarískt fyrirtæki var skilgreint sem slíkt en Anthropic hefur verið notað af hátt settum aðilum í hinu opinbera og á vegum hersins frá árinu 2024. Vegna þessa lögsótti Anthropic varnarmálaráðuneytið. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði fyrirtækið vera „vinstrisinnaða fávita“ (e. left wing nut jobs) þegar fregnir af lögsókninni bárust. „Við þurfum þá ekki, við viljum þá ekki og við munum ekki eiga í viðskiptum við þá aftur,“ skrifaði hann í færslu á Truth Social. Þegar hann var spurður á opinberum fundi í gær um fundinn sagðist hann ekki hafa hugmynd um að slíkur fundur hefði átt sér stað.
Gervigreind Bandaríkin Tækni Donald Trump Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira