„Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 19. apríl 2026 13:00 Þorkell Máni Pétursson Eigandi umboðsskrifstofu segir nýsamþykktar aðgerðir Reykjavíkurborgar sem eiga að efla tónleikastaði í borginni tilgerðalegar og hallærislegar. Upphæðin sem verja eigi í verkefnið sé dropi í hafið og að tónleikahaldarar greiði hana margfalt til baka vegna hækkandi gjalda.
Borgarráð samþykkti í vikunni að endurvekja úrbótasjóð tónleikastaða og mun sjóðurinn á þessu ári hafa tíu milljónir króna til úthlutunar í verkefni sem miða að því að efla tónleikastaði í miðborginni. Þá á að verja tveimur milljónum í að byggja upp æfingaaðstöðu við Hlemm. Fréttastofa hefur á síðustu árum fjallað um að ýmsir tónleikastaðir hafa verið að víkja og rekstraraðilar hafa lýst sorglegri þróun í geiranum. Máni Pétursson, eigandi og stofnandi Paxal umboðsskrifstofu, telur útspil borgarinnar til þess að mæta stöðunni máttlaust. „Þessar tíu milljónir eru náttúrulega bara dropi í hafið miðað við þann skaða sem bæði Reykjavíkurborg, hið opinbera og alls konar stofnanir eru að hafa almennt á tónleikahalda á Íslandi.“ Á sama tíma sé sífellt verið að hækka gjöld sem tengjast tónleikahaldi. Staðan sé erfið í geiranum og kostnaðurinn skili sér út í miðaverð sem hækkar. „Ég get eiginlega fullyrt það að ég er að láta Reykjavíkurborg hafa tíu milljónir aukalega bara á þessu ári í einhverjum gjöldum og hlunnindum - og það eru peningarnir sem þeir ætla að leggja í að styrkja tónleikastaði niðri í bæ,“ segir Máni. Minnka kvaðir og skapa svigrúm „Menn ættu frekar að hugsa, hvernig eigum við að minnka kvaðirnar og hvað eigum við að gera til þess að fólk geti búið til eitthvað skapandi. Það er rosa lítið að bjóða fram tíu milljónir til þess að búa til eitthvað skapandi en að sama skapi leggja gjöld á alla fyrir alls konar vitleysu.“ Flækjustigið sé víða hjá borg og ríki. Endurskoða mætti ýmiss konar gjaldtöku og umhverfið í heild. „Það mætti náttúrulega skoða það að breyta virðisaukaskattþrepinu á tónlist almennt yfir höfuð, það er að segja þegar fólk er að leigja búnað og annað atriði,“ nefnir Máni sem dæmi. Hann telur að um sýndaraðgerð sé að ræða. „Mér finnst bara hið opinbera og alls konar stofnanir í þessu landi vera fyrir tónlistariðnaði. Hann gæti vaxið miklu betur ef þessi afskipti verða aðeins minni. Þessi upphæð sem Reykjavíkurborg er að setja í þetta er eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð og það er alveg eins gott að sleppa þessu bara,“ segir Máni.
Reykjavík Tónlist Tónleikar á Íslandi Borgarstjórn Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira