Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar 16. apríl 2026 12:47 Sviðsstjóri ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sagðist í fréttum RÚV í gær ekki útiloka að „ráðizt verði til aðgerða“ gegn netverzlunum með áfengi í framhaldi af dómi Héraðsdóms Reykjaness á dögunum, þar sem félagsmaður Félags atvinnurekenda var sakfelldur fyrir að brjóta gegn meintum einkarétti íslenzka ríkisins á áfengissölu. „Það er ljóst að háttsemin er ólögmæt,“ fullyrti sviðsstjórinn. Samkvæmt þessu má búast við því að lögreglan fari að loka afhendingarstöðum netverzlana með valdi til að verja meintan einkarétt Ríkisins (Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins). Rétt að spara stóru orðin Aðgerðir ríkisvaldsins gegn netverzlunum með áfengi hafa verið handahófskenndar og virzt stjórnast af geðþóttaákvörðunum. Fjöldinn allur af fyrirtækjum, sem selja neytendum áfengi í gegnum félög með staðfestu í öðrum EES-ríkjum, er látinn óáreittur, þar á meðal stærsta smásöluverzlanakeðja landsins, Hagar, og alþjóðlegu stórfyrirtækin Costco og Heinemann. Ákæra var hins vegar gefin út á hendur forsvarsmanni eins fyrirtækis, Smáríkisins, að því er virðist til að búa til einhvers konar prófmál. Það væri vægast sagt háskalegt af hálfu lögreglunnar að ætla að „ráðast til aðgerða“ og loka afhendingarstöðum hjá hátt í 30 fyrirtækjum á grundvelli dóms héraðsdóms, sem sætir áfrýjun. Rökstuðningurinn í þeim dómi kemur að mörgu leyti spánskt fyrir sjónir; þar er til dæmis ekki leyst úr því með neinum sannfærandi hætti hvernig það standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar að neytendur megi hindrunarlaust skipta við netverzlanir með áfengi í öðrum EES-ríkjum en þó alls ekki þær verzlanir sem hafa lager á Íslandi. Dómarinn tekur sér sömuleiðis fyrir hendur að skilgreina sjálfur hugtakið smásala, sem hvergi er skilgreint í lögum, þannig að það henti málatilbúnaði ákæruvaldsins. Þetta gengur gegn meginreglu lögmætis í réttarframkvæmd, sem krefst skýrra lagaheimilda fyrir takmörkunum á frelsi borgaranna, í þessu tilviki atvinnufrelsisins. Staðreyndin er sú, eins og t.d. dómsmálaráðuneytið hefur látið frá sér fara, að áfengislöggjöfin er úrelt, hefur ekki breytzt í grundvallaratriðum frá árinu 1969 og ekki tekið neitt tillit til þróunar samfélags- og viðskiptahátta, þar með talinnar tilkomu internetsins. Íslenzka ríkið gæti verið að baka sér stórfellda skaðabótaskyldu með því að „ráðast til aðgerða“ áður en öll dómstig hafa fjallað um málið. Sviðsstjóri ákærusviðs LRH ætti þess vegna að spara stóru orðin í bili. Fjöldi undanþága og undantekninga Ekki verður heldur horft framhjá því að ríkið sjálft lætur fjölda undanþága og undantekninga frá einkaréttinum viðgangast, og flestar án allra heimilda í lögum. Þannig veitti íslenzka ríkið sjálft sérlegt leyfi til þess að einkafyrirtæki reki stærstu vínbúð landsins í Flugstöð Leifs Eiríkssonar – en án breytinga á áfengislögunum, sem kveða í orði á um einkarétt ríkisins á smásölu. Önnur undanþága var með lagabreytingu veitt litlum brugghúsum til að selja vörur sínar á framleiðslustað (starfsemi sem hafði lengi viðgengizt án lagaheimildar). Ríkið horfir í gegnum fingur sér með að óopnað áfengi sé selt viðskiptavinum í vegasjoppum og matvöruverzluninni í Leifsstöð. Það gerir ekkert í því að gjafavöru- og kjötbúðir selji fólki gjafapakka og -körfur og „gefi“ því léttvínsflösku með. Það gerir ekkert í því að fjöldi vínáhugamanna fái allt sitt léttvín í vínklúbbum, án nokkurrar aðkomu Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins. Hinn meinti einkaréttur er orðinn eins og gatasigti, enda er hann löngu gagnslaus og úreltur sem tæki til að takmarka aðgengi að áfengi. ÁTVR hefur sjálf snarfjölgað afgreiðslustöðum á undanförnum áratugum, rýmkað opnunartíma og opnað búð á netinu. Þetta rýrir verulega röksemdir ríkisins fyrir því að einkarétturinn, í þágu meintrar lýðheilsustefnu, standist meðalhófsreglu laga. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) setur í nýlegu erindi til stjórnvaldastór spurningarmerki við einokunarkerfið, meðal annars í ljósi þeirra undantekninga sem eru gerðar á einkaréttinum, og íslenzka ríkið þarf nú að verja einokunarfyrirkomulagið fyrir stofnuninni. Þetta úrelta kerfi er að liðast í sundur. Þriðja Ríkið? Veltum því samt aðeins fyrir okkur hvað myndi gerast ef Hæstiréttur kæmist að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Reykjaness; að íslenzka ríkið eigi fortakslausan einkarétt á sölu áfengis, hvort heldur er í gegnum netið eða með öðrum aðferðum. Og að lögreglan „ráðist til aðgerða“ í framhaldi af því. Þá verður auðvitað eitt yfir alla að ganga. Afhendingarstöðum netverzlana, þar sem tugir manna starfa, verður lokað með lögregluvaldi. Lögreglan mun loka Fríhöfninni í Leifsstöð, eða a.m.k. áfengisdeildinni, þar til rekstri hennar verður komið aftur í hendur ríkisins. Staðarskáli og allar hinar vegasjoppurnar verða undir stöðugu eftirliti lögreglu að þær selji ekki einn óopnaðan bjór. Lögreglurassían í gjafavöru- og kjötbúðum mun vekja athygli, sömuleiðis aðgerðir lögreglunnar gegn vínklúbbunum, sem skipta tugum. Það er spurning hvernig lögreglunni gengur að sinna öðrum verkefnum, eins og að tryggja öryggi borgaranna, á meðan verið er að fínkemba landið og útrýma keppinautum Ríkisins. Það er óhætt að segja að stemningin verði talsvert ráðstjórnar- eða þriðja (R)íkis. Þessa atburðarás virðast þeir, sem hamra á fortakslausum einkarétti ríkisins til áfengissölu, aldrei hugsa til enda – eða þeir láta það alltént ekki uppi að þetta yrðu afleiðingarnar. Stjórnmálamenn hysji upp um sig Stjórnmálamennirnir hafa árum saman hummað fram af sér að koma einhverju skynsamlegu viti í áfengislöggjöfina og gera hana þannig úr garði að hún taki mið af þróun viðskipta og samfélags. Hvað varðar netverzlun með áfengi sérstaklega hefur kjarkleysi stjórnmálamanna, til dæmis Víðis Reynissonar formanns allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis og Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra, komið fram í því að þeir hafa viljað útvista verkefni stjórnmálanna til dómstólanna. Eitt af því fáa sem taka má mark á í dómi Héraðsdóms Reykjaness er eftirfarandi setning: „Það er ekki hlutverk dómstóla að breyta settum lögum.“ Það er nefnilega verkefni stjórnmálamannanna. Ef þeir gera ekki neitt, eiga þeir á hættu að þessi mál endi í algjöru óefni, eins og rökstutt er hér að framan. Fyrir Alþingi liggur þingmannafrumvarp óbreyttra þingmanna Viðreisnar um að heimila innlenda netverzlun með áfengi. Góð byrjun væri að hraða afgreiðslu þess frumvarps á Alþingi, enda virðist geta verið meirihluti fyrir því. En svo þarf áfengislöggjöfin víðtækrar heildarendurskoðunar við, sem stjórnvöld verða að hafa kjark til að takast á við. Stjórnmálamenn virðast hræddir við hóp, sem hefur hátt og leggst gegn öllum breytingum í nafni lýðheilsu. Að mati Félags atvinnurekenda er það miklu líklegra til að ná lýðheilsumarkmiðum að horfast í augu við að afleiðing þess að breyta ekki neinu er að alls konar starfsemi viðgengst án þess að gert sé ráð fyrir henni í lögum og þar af leiðandi gilda ekki um hana neinar reglur – til dæmis um afgreiðslutíma, aldursmörk og auðkenningu, hvar áfengisauglýsingar birtast og að hverjum þær beinast og þannig mætti lengi telja. Það er miklu líklegra til að ná lýðheilsumarkmiðum að heimila starfsemi, sem lengi hefur viðgengizt, en setja um leið lagalegan ramma um hana. Þannig hefur löggjafinn að minnsta kosti einhver áhrif á þróunina, í stað þess að stinga hausnum í sandinn og láta eins og ekkert hafi breytzt undanfarna hálfa öld. En svo er auðvitað sá kostur að beita lögreglunni til að koma okkur aftur til ársins 1969. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Netverslun með áfengi Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar