Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Þórarinn Þórarinsson skrifar 15. apríl 2026 15:16 Björg Magnúsdóttir blandaði sér í funheita umræðu um unnar kjötvörur í skólum Reykjavíkur og uppskar Facebook-athugasemdir sem Líf Magneudóttir setur á verðlaunapall. Vísir/Samsett Ekki er laust við að borgarfulltrúinn Líf Magneudóttir fagni því sem hún kallar „sjálfsmark“ þegar hún vekur athygli á Facebook-færslu Viðreisnaroddvitans Bjargar Magnúsdóttur þar sem hún segir „bara svo sjúklega samfylkingarlegt“ að banna unnar kjötvörur í skólum borgarinnar.
Björg Magnúsdóttir, sem leiðir lista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum, lýsti í morgun skoðun sinni á nýsamþykktu banni við unnum kjötvörum í skólum borgarinnar með Facebook-færslu sem hefur fengið heldur dræmar undirtektir í athugasemdum.„Nú vill Reykjavíkurborg banna unnar kjötvörur í grunnskólum. Auðvitað viljum við að börnin okkar borði hollan mat. En það er bara svo sjúklega samfylkingarlegt að ætla að leysa mál með því að flækja og banna,“ skrifar Björg og spyr síðan hvers vegna hvatar séu frekar notaðir til að gera hollan mat að besta kostinum. Sé rétt að málum staðið segir hún í „fínasta lagi að krakkarnir fái sér pylsu á hátíðisdögum“ og viðurkennir síðan fúslega að pylsur séu reglulega á eldhúsborðinu heima hjá henni. Á verðlaunapall eftir sjálfsmark Eftir fimm klukkustundir hafði færslan uppskorið 136 „læk“ og 46 athugasemdir, sem flestar eru þó svo neikvæðar að Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, virðist hafa séð sér leik á borði með því að deila færslunni með þessum orðum:„Sjálfsmark dagsins hjá færsluflytjanda en kommentakerfið fer lóðbeint á verðlaunapallinn. Mikil skemmtilesning!“ Egill Helgason, fyrrverandi vinnufélagi Bjargar hjá RÚV, ríður á vaðið í athugasemdunum og segja má að hann gefi tóninn: „Besta mál. Það á ekki að gefa börnum mat sem við viljum ekki borða sjálf. Yrði upplit í hinum fínu mötuneytum í borginni ef naggar væru bornir á borð. Það er líka hluti af menntun að hafa ferskan og góðan mat ekki fjöldaframleitt fóður.“ Þau sem fylgja í kjölfarið og komast þannig á verðlaunapall hjá Líf hafa meðal annars þetta um færsluna að segja:„ Alveg ósammála þér hér Björg. Hér er um að ræða mikilvægt skref til að bæta heilsu barnanna í borginni en snýst ekkert um að banna fólki eitt eða neitt. Fæ eiginlega bara kjánahroll að þetta mál sé sett í gamaldags hægri-vinstri skotgrafir.“ „Langt síðan ég hef fagnað einhverju í borgarmálum jafn mikið og þegar ég las um þetta bann í mötuneytum grunn- og leikskóla… Höfum það líka í huga að í hvert skipti sem boðið er upp á unnar kjötvörur í mötuneytum skólanna þá er val barnanna okkar til að borða hreina og holla fæðu tekið af þeim.“ „Þessi status á eftir að eldast illa!“„Nú skaustu yfir markið elsku Björg , af hverjuekki að fagna því sem vel er gert.“ Fleiri bjúgu? Þá er Björg beðin um að útskýra betur hvers eðlis „hvatarnir“ sem hún nefnir eru. „ Átta mig heldur ekki alveg á inntakinu í samtalinu við foreldra. Foreldrarnir taka ekki neinn beinan þátt í matseld í skólanum. Er kenningin að foreldrar myndu kjósa fleiri bjúgu fengju þeir að ráða?“Björgvin G. Sigurðssyni, fyrrverandi þingmanni og ráðherra Samfylkingarinnar, þykir „þetta lítið smekklegur status“ hjá Björgu en gerir þó ráð fyrir því að „ sjúklegasamfylkingarlegt“ þyki „örugglega voða sniðugt í herbúðum íhaldsins.“ Guðni Freyr Öfjörð, sem skipar 9. sæti á framboðslista Pírata í borginni, svarar Björgu í nokkuð löngu máli og byrjar á því að benda á að ekki sé um eiginlegt bann að ræða og lýsir sig síðan algerlega sammála borgarstjórnarmeirihlutanum í málinu og bendir á rannsóknir sem sýna fram á fylgni ristilkrabbameins og neyslu unninna kjötvara.Þótt mótmælin í athugasemdum séu hávær stendur Björg þó ekki alveg á berangri á eigin Facebook-vegg og innan um andmælin má finna athugasemdir á borð við þessa: „Ekta Samfylkingartaktík að þvinga alla inn í lífsstíl sem þeim þóknast. Getum við gefið þessu fólki frí pleeeeesssse þau eru búin að stjórna borginni alveg nógu lengi!!!!“
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Reykjavík Borgarstjórn Matur Grunnskólar Mest lesið Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Erlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Heilsu Haraldar hrakar enn Erlent Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Innlent Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Fleiri fréttir Óákveðnir hallist jafnan að minni breytingum Ætlar ekki að láta kúga sig Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Alvarlega staða kalli á sameiginlegt átak Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Forsendur brostnar og heilsu konungs hrakar Maðurinn sem lést í Stuðlagili sagður pólskur Djúpur tunglmyrkvi sýnilegur frá Íslandi í nótt Beint streymi: Háskólamenntaðir á húsnæðismarkaði Málið vegna fjársöfnunar Solaris tekið fyrir í héraðsdómi Þrjú heimilisofbeldismál til rannsóknar eftir nóttina Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Sjá meira