Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Árni Sæberg skrifar 15. apríl 2026 09:12 Jón Þór Dagbjartsson í dómsal á Egilsstöðum, þar sem aðalmeðferðin fór fram við Héraðsdóm Austurlands. Austurfrétt/Gunnar Gunnarsson Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarleyfisbeiðni Jóns Þórs Dagbjartssonar, sem var dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir grófa líkamsárás og tilraun til manndráps gagnvart fyrrverandi sambýliskonu sinni á Vopnafirði árið 2024.
Í júní 2025 dæmdi héraðsdómur Austurlands Jón Þór í sex ára fangelsi í Vopnafjarðarmálinu svokallaða, fyrir grófa árás á fyrrverandi sambýliskonu sína á Vopnafirði í október í 2024. Þar hafði hann verið ákærður fyrir tilraun til manndráps með því að hafa veist að konunni, Hafdísi Báru Óskarsdóttur, með litlum járnkarli, reynt að stinga hana og síðan kyrkja. Þann 5. febrúar síðastliðinn þyngdi Landsréttur refsingu Jóns Þórs í sjö ára fangelsisvistar, þar sem rétturinn komst að þeirri niðurstöðu að það væri hafið yfir skynsamlegan vafa að Jón hefði haft beinan ásetning til að svipta Hafdísi lífi. Engin rök færð fyrir þyngri refsingu Í ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfisbeiðni Jóns Þórs segir að hann hafi óskað eftir áfrýjunarleyfi og einkum byggt á því að dómur Landsréttar væri bersýnilega rangur að formi og efni. Rökstuðningur réttarins hafi ekki verið í samræmi við lög um meðferð sakamála, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands og mannréttindasáttmála Evrópu. Ekki hefði verið fjallað um athugasemdir hans við sönnunarmat héraðsdóms og vörnum hans ekki gerð skil. Engin rök hefðu verið færð fyrir þyngri refsingu og sakarmat réttarins væri rangt. Sérstaklega hefði niðurstaða réttarins um sakfellingu fyrir tilraun til manndráps verið röng. Þá teldi hann þau atriði sem hann byggði beiðni sína á einnig hafa verulega almenna þýðingu. Endurskoða ekki munnlegan framburð Í niðurstöðukafla ákvörðunarinnar segir að að virtum gögnum málsins verði hvorki séð að það lúti að atriðum sem hafi verulega almenna þýðingu né að mjög mikilvægt sé af öðrum ástæðum að fá úrlausn Hæstaréttar um þannig að fullnægt sé skilyrðum laga um meðferð sakamála um að dómur sé bersýnilega rangur, hafi almenna þýðingu, mikilvægt sé að fá úrlausn Hæstaréttar um málið eða að málsmeðferð hafi verið ábótavant. Niðurstaða Landsréttar um sakfellingu byggist jafnframt að verulegu leyti á mati á sönnunargildi munnlegs framburðar en það mat verði ekki endurskoðað fyrir Hæstarétti. Beiðninni sé því hafnað.
Ofbeldi á Vopnafirði Vopnafjörður Dómsmál Kynbundið ofbeldi Kynferðisofbeldi Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Sjá meira