Náttúruverndin er munaðarlaus í Hafnarfirði Anna Sigríður Sigurðardóttir og Davíð Arnar Stefánsson skrifa 14. apríl 2026 06:31 Réttur til heilnæms umhverfis er grundvallarmannréttindi sem felur í sér rétt til hreins, heilbrigðs og sjálfbærs umhverfis fyrir núverandi og komandi kynslóðir. (Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna, 2022) Einn af fjölmörgum kostum þess að búa í Hafnarfirði er gott aðgengi að fjölbreyttri og lítt raskaðri náttúru. Það nýta bæjarbúar sér vel til heilsubótar og tómstunda eins og sjá má daglega á fjölda fólks í upplandinu, við Hvaleyrarvatn, Ástjörn, Kleifarvatn, Krýsuvík og víðar. það er óhætt að segja að í bæjarlandinu felist hið raunverulega lífsgæðasetur. Í umhverfisstefnu Hafnarfjarðar segir m.a.: „Stefnt er að því að Hafnarfjörður verði í fararbroddi sveitarfélaga á Íslandi við verndun náttúrunnar, auðlinda og menningarminja.“ Þrátt fyrir skýr og fögur fyrirheit er ekki starfandi lögboðin umhverfis- eða náttúruverndarnefnd í bænum. Það er vissulega starfandi Umhverfis- og framkvæmdaráð sem er ætlað að fara með umhverfis- og/eða náttúruverndarmál í sveitarfélaginu en þar eru framkvæmdamálin mun fyrirferðameiri og nær eingöngu til umfjöllunnar. Það er þess valdandi að umhverfis- og náttúruverndarumræða fer hvergi fram á vettvangi bæjarstjórnar. Ekki ólíkt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem orkumálin virðast nær eingöngu til umræðu í ráðuneytinu, allavega um þessar mundir. Tökum nokkur nýleg dæmi um framkvæmdir sem hefðu með réttu átt að kalla á djúpa og opinbera náttúruverndarumræðu á vettvangi bæjarstjórnar: I. Bygging risavaxins knatthúss við friðlandið Ástjörn en bæði Náttúruverndarstofnun og Skipulagsstofnun lögðust gegn staðsetningunni svo nærri tjörninni og mæltust til þess að húsinu væri fundinn annar staður. Ekki á neinu stigi skipulagsferlisins fór fram opinber umræða um vernd Ástjarnar í tengslum við bygginguna. II. Fyrirhuguð kolefnisförgunarstöð Carbfix við Vallahverfið sem nú hefur verið fallið frá vegna kröftugra mótmæla íbúa í bænum við starfseminni. Starfsemi Carbfix er bæði auðlindafrek og hefur talsverð umhverfisáhrif auk þess sem byggja þyrfti sérstaka höfn fyrir kolefnisflutningana. Ekki á neinu stigi skipulagsferlisins fór fram opinber umræða um náttúruvernd í tengslum við Coda. III. Rannsóknarboranir eftir heitu vatni vegna fyrirhugaðar virkjunnar með tilheyrandi óafturkræfu raski við einstakar jarðminjar og lítt raskaða landslagsheild í umhverfi Kleifarvatns og Krýsuvíkur. Enn hefur ekki farið fram opinber umræða um umhverfisáhrif virkjunarinnar í bænum. Á meðan fleytir verkefninu áfram. IV. Nýsamþykkt skipulag sem felur í sér yfirgengilega stækkun Straumsvíkurhafnar með tilheyrandi námuvinnslu og raski við Straum sem er á náttúruminjaskrá. Engin opinber umræða fór fram um stækkunaráformin. Úr þessu þarf vitanlega að bæta. Náttúran verður að eiga sér málsvara í bæjarstjórn og þar þarf að vera vettvangur fyrir eðlilega náttúruverndarumræðu. Við í Vinstrinu viljum að komið verði á fót raunverulegri umhverfis- og náttúruverndarnefnd í Hafnarfirði líkt og lög gera ráð fyrir. Jafnframt leggjum við til að komið verði á fót sérstöku starfi umhverfis- og hringrásarfulltrúa sveitarfélagsins en umhverfis- og hringrásarmálin verða sífellt fyrirferðarmeiri í starfsemi sveitarfélaganna og fyrirséð að svo verði áfram. Á tímum náttúrutaps og loftslagsbreytinga hefur vernd umhverfis- og náttúru aldrei verið mikilvægari. Líka í Hafnarfirði. Í þeim anda hvetjum við hafnfirska náttúruunnendur til að fjölmenna með okkur og öðrum í grænu gönguna á sumardaginn fyrsta því náttúran á undir högg að sækja og þarf svo sannarlega á fleiri röddum að halda. Höfundar sitja bæði á lista Vinstrisins í Hafnarfirði sem býður fram í bæjarstjórnarkosningunum í vor. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Arnar Stefánsson Vinstrið Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar