Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. apríl 2026 10:32 Vandræði Tottenham virðast engan enda ætla að taka. getty/MI News Jamie Carragher, álitsgjafi og fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir allt benda til þess að Tottenham falli úr ensku úrvalsdeildinni. Liðið er í fallsæti þegar sex umferðir eru eftir af tímabilinu.
Tottenham tapaði 1-0 fyrir nýliðum Sunderland í gær. Þetta var fyrsti leikur liðsins undir stjórn Robertos De Zerbi, þriðja knattspyrnustjóra Spurs á þessu tímabili. „Ég trúi þessu ekki. Tottenham lítur út fyrir að fara að falla. Hin liðin eru með einhvern meðbyr,“ sagði Carragher og vísaði til Nottingham Forest og West Ham United sem eru í sætunum fyrir ofan Tottenham. Á lokaspretti tímabilsins mætir Tottenham meðal annars botnliði Wolves og Leeds United sem hefur gengið illa að undanförnu. Þrátt fyrir það er Carragher ekki bjartsýnn fyrir hönd Spurs. „Þú horfir á dagskrána og hugsar með þér að þetta sé góður leikur fyrir Tottenham. En þeir eru afleitir,“ sagði Carragher. „Wolves er á botninum. Held ég að Tottenham fari þangað og vinni? Ekki möguleiki.“ Tottenham hefur ekki enn unnið leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu ári. Síðasti deildarsigur liðsins kom gegn Crystal Palace, 0-1, 28. desember í fyrra. Næsti leikur Tottenham er gegn Brighton á heimavelli á laugardaginn kemur.
Enski boltinn Tottenham Hotspur Tengdar fréttir Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Tottenham Hotspur tapaði fyrsta leik sínum undir stjórn Roberto De Zerbi og er því áfram í fallsæti. Þremur leikjum var að ljúka, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 12. apríl 2026 14:50 Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Enski boltinn Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Sport Fleiri fréttir Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi Sjá meira
Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Tottenham Hotspur tapaði fyrsta leik sínum undir stjórn Roberto De Zerbi og er því áfram í fallsæti. Þremur leikjum var að ljúka, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 12. apríl 2026 14:50