Erlent

Orbán játar sig sigraðan

Agnar Már Másson skrifar
Viktor Orbán (t.v.) tókst ekki að standast áhlaup Péters Magyar (t.h.) og framlengja stjórnarsetu sína sem hefur þegar spannað sextán ár.
Viktor Orbán (t.v.) tókst ekki að standast áhlaup Péters Magyar (t.h.) og framlengja stjórnarsetu sína sem hefur þegar spannað sextán ár. Vísir/EPA

Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, játar sig sigraðan í ungversku þingkosningunum og óskar Péter Magyar, formanni stjórnarandstöðuflokksins Tisza, til hamingju með sigurinn. Fyrstu tölur úr kjörkössum benda til þess að Tisza vinni stórsigur. 

Rúmlega 60 prósent atkvæða hafa verið talin, samkvæmt landskjörstjórn Ungverjalands.

Samkvæmt töldum atkvæðum hlýtur Tisza 53 prósent atkvæða (136 þingsæti af 199) en Fidez-flokkur Orbáns hefur hlotið 38 prósent atkvæða (45 þingsæti). Flokkurinn Okkar Heimaland (Mi Hazánk) hefur fengið 6 prósent talinna atkvæða eða um 7 þingmenn.

„Viktor Orbán forsætisráðherra óskaði okkur til hamingju með sigurinn símleiðis.“ Svo hljóðar samfélagsmiðlafærsla Péters Magyar, formanns stjórnarandstöðuflokksins Tisza í Ungverjalandi, sem virðist nú hafa steypt Viktor Orban af stóli.

Skömmu síðar, um kl. 19.20, flutti Orbán ræðu þar sem hann viðurkenndi ósigurinn. 

„Lokaniðurstaða liggur enn ekki fyrir, en hún er skiljanleg og skýr. Niðurstöður kosninganna eru okkur sársaukafullar, en skýrar. Við fengum ekki umboð eða ábyrgð til þess að stjórna landinu. Ég hef óskað sigurvegaranum til hamingju,“ sagði Orbán,

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×