Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Eiður Þór Árnason skrifar 8. apríl 2026 20:08 Mohammad Bagher Ghalibaf, forseti íranska þingsins. Getty/Morteza Nikoubazl Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs.
Greint hefur verið frá því að Íran hafi lokað Hormússundi að nýju vegna árása Ísraels á bandamenn þeirra í Líbanon. Mohammad Bagher Ghalibaf, forseti íranska þingsins, fullyrðir að vopnahlé í Líbanon hafi verið hluti af tillögunum en Bandaríkjastjórn hefur hafnað þessu í dag. Forsætisráðherra Ísraels segist ætla að halda áfram árásum í Líbanon eftir einar umfangsmestu árásir þeirra í gær. Heilbrigðisyfirvöld segja minnst 112 hafa fallið. Ghalibaf, forseti íranska þingsins, nefnir að dróni hafi farið inn í Fars-hérað í suðurhluta Írans og þetta feli í sér brot á öðru ákvæði tillaganna. Ísraelski herinn segir breska ríkisútvarpinu BBC að hann sé „ekki meðvitaður“ um slíkt atvik. Í þriðja lagi segir Ghalibaf að réttur Írans til auðgunar úrans sé hluti af tillögunum. Ákvæði þess efnis mátti finna í yfirlýsingu á persnesku frá þjóðaröryggisráði Írans sem lesin var í íranska ríkissjónvarpinu í gærkvöldi en það vantaði í enska útgáfu tillagnanna sem dreift var til fjölmiðla í gær. Ghalibaf greinir frá hinum meintu brotum í færslu á X, áður Twitter, og kemur yfirlýsingin í kjölfar frétta þess efnis að Íranski byltingarvörðurinn hafi lokað Hormússundi á ný vegna stórfelldra árása Ísraelshers í Líbanon. Byltingarvörðurinn er sagður ætla að svara áframhaldandi árásum þar og vara Ísrael og Bandaríkin við alvarlegum afleiðingum ef þær hætta ekki tafarlaust. Bandaríkin þurfi að velja Utanríkisráðherra Íran segir Bandaríkin þurfa að velja á milli vopnahlés og áframhaldandi stríðs „með milligöngu Ísraels.“ Stjórnvöld geti ekki fengið hvort tveggja. Seyed Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir að ákvæði tveggja vikna vopnahlés Bandaríkjanna og Íran séu „skýr og afgerandi.“ Þetta kemur fram í færslu hans á samfélagsmiðlinum X. Samhliða færslunni deilir hann tilkynningu forsætisráðherra Pakistan um vopnahléið þar sem sá fullyrti að samkomulagið næði einnig til Líbanon. Kharg-eyja Hormússund JEMEN S.A.F. TYRKLAND SÝRLAND SÁDI-ARABÍA ÓMAN ÍRAK ÍRAN JÓRDANÍA EGYPTALAND LÍBANON ÍSRAEL KÚVEIT KÝPUR PALESTÍNA Kharg-eyja Teheran Hormússund BAREIN KATAR Fréttin hefur verið uppfærð.
Íran Bandaríkin Líbanon Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Tengdar fréttir Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Hagfræðingur hjá ASÍ segir enn margt óljóst hvað varðar lokun Hormússunds og áhrifum þess á bensínverð. Sé lokun aðeins tímabundin geti það leitt til lægra bensínverðs en haldi vopnahléið ekki og lokunin haldi áfram megi búast við áframhaldandi hækkunum á bensínverði. 8. apríl 2026 20:24 Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. 8. apríl 2026 17:13 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira
Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Hagfræðingur hjá ASÍ segir enn margt óljóst hvað varðar lokun Hormússunds og áhrifum þess á bensínverð. Sé lokun aðeins tímabundin geti það leitt til lægra bensínverðs en haldi vopnahléið ekki og lokunin haldi áfram megi búast við áframhaldandi hækkunum á bensínverði. 8. apríl 2026 20:24
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. 8. apríl 2026 17:13