Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. apríl 2026 07:39 Vopnahléið virðist byggja á afar viðkvæmum grunni. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandarískan herafla munu verða áfram við Íran þar til skilmálar „hins raunverulega samkomulags“ milli Bandaríkjanna og Íran hafa verið uppfylltir. Forsetinn er þarna að vísa til þess að deildar meiningar virðast uppi varðandi það um hvað var samið.
Trump fullyrðir í færslu á Truth Social að samið hafi verið um kjarnorkuvopnalaust Íran og greiða og örugga umferð um Hormuz-sund. Þá hefur hann enn og aftur í hótunum um fordæmalausar árásir nái þetta ekki fram að ganga. Forsetinn segir Bandaríkjaher hlakka til næstu sigra, án þess að útskýra hvað hann á við. Ljóst er að kröfur Bandaríkjamanna annars vegar og Írana hins vegar fara ekki saman og þá virðist einnig kominn upp ágreiningur um þær tillögur sem Pakistanar lögðu fram og hið tveggja vikna vopnahlé aðila byggir á. Þar má meðal annars nefna hvort vopnahléð hafi átt að ná til Líbanon. Stjórnvöld í Ísrael sögðust í gær myndu virða vopnahléð nema hvað varðar aðgerðir gegn Hezbollah í Líbanon. Fregnir hafa borist af því að þau séu síður en svo ánægð með að hafa ekki átt beina aðkomu að vopnahlésviðræðunum. Þá hafa ráðamenn vestanhafs ýjað að því að samkomulag hafi náðst um að Íranir láti af hendi, eða að Bandaríkjamenn sæki, birgðir Írana af auðguðu úrani en stjórnvöld í Íran hafa ekki tjáð sig um málið. Hormuz-sund virðist enn fremur enn lokað skipaumferð, þrátt fyrir að tillögurnar hafi kveðið á um opnun þess og Íranir sagt að skip gætu siglt um í samráði við hernaðaryfirvöld í landinu. Óvissa virðist einnig uppi um viðræðurnar sem áttu að hefjast á meðan vopnahléinu stæði en sendiherra Íran í Pakistan eyddi færslu á X þar sem hann hafði áður greint frá því að sendinefnd frá Íran væri væntanleg til Islamabad til viðræðna við fulltrúa Bandaríkjanna. Olíuverð hefur hækkað aftur í morgun eftir lækkanir í gær.
Íran Ísrael Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira