Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Þollý Rósmundsdóttir skrifar 13. apríl 2026 06:02 Í kvöldfréttum RÚV laugardagskvöldið 11. apríl sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra orðrétt: „Við erum ekki að kjósa um inngöngu.“ Hvað erum við þá að kjósa um, Kristrún? Aðlögun að öllu regluverki Evrópusambandsins og stjórnsýslu þess sem við ætlum okkur síðan ekki að ganga inn í? Eða eins og segir í greinargerðinni með þingsályktunartillögu ríkisstjórnar hennar um þjóðaratkvæðið í lok ágúst: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“ Hefur nokkur þjóð farið í slíka vegferð án þess að ætla sér að ganga í ESB? Aðildarviðræður við ESB snúast fyrst og síðast um það að umsóknarríki aðlagar alla sína löggjöf að regluverki sambandsins. Síðast strönduðu þær viðræður okkar ekki síst á sjávarútvegs- og landbúnaðarkaflanum enda veitir ESB engar varanlegar undanþágur lengur í slíkum málum. Það er hægt að fá tímabundna aðlögun og sérstaka aðlögun (sérlausnir) í minni háttar málum. Varanlegar undanþágur og sérlausnir eru sitthvor hluturinn. Ólíkt hinu fyrra breytir það síðara engu um það að valdið fer til ESB. Að halda það að Ísland geti fengið varanlega undanþágu vegna 200 mílna fiskveiðilögsögu okkar er því óskhyggjan ein. Auk þess myndu allar hinar 27 Evrópuþjóðirnar aldrei samþykkja neina sérmeðferð fyrir Ísland sem þær fengju ekki sjálfar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra talar síðan gjarnan um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu svona eins og til að róa fólk. Að það sé þá bara hægt að segja nei í seinni þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þegar það er búið að aðlaga alla löggjöf okkar hér að regluverki ESB. Þegar samningur lægi fyrir væri það búið og gert. Það kostar að kíkja í pakkann, pakka sem þegar er opinn, og sá kostnaður hleypur á mörg hundruðum milljóna króna. Væri nú ekki nær að nota þá fjármuni í brýn og aðkallandi verkefni hér innanlands í stað þess að æða af stað í þetta rándýra bjölluat í Brussel? Höfum við ekki nóg við peningana að gera? Síendurtekið og villandi orðalag bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst er ámælisvert. Á sama tíma saka þær þá sem eru á öndverðum meiði á við þær sífellt um upplýsingaóreiðu. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að æ fleiri eru greinilega farnir að sjá í gegnum blekkjandi orðalagið og átta sig á hinu rétta: Að kosningarnar 29. ágúst snúast í raun um það hvort Ísland eigi að ganga í ESB eða ekki. Ég mun segja NEI við inngöngu Íslands í ESB höfuðdaginn 29. ágúst! Höfundur er tónlistarkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar