Segir Stefán hafa gert atlögu að friðhelgi einkalífs Freyja Þórisdóttir skrifar 10. apríl 2026 11:05 Sævar Þór Jónsson er lögmaður mannsins sem kærði Stefán Jakobsson fyrir líkamsárás. Stefáni var gert að hafa gefið manninum olnbogaskot í leigubíl í október árið 2023. Vísir/Daníel Þór Lögmaður manns sem kærði tónlistarmanninn Stefán Jakobsson fyrir líkamsárás segir óásættanlegt að nýta vettvang samfélagsmiðla og fjölmiðla til að vega að persónu mannsins. Stefán var í vikunni sýknaður í málinu og er í framhaldinu hættur sem söngvari hljómsveitarinnar Dimmu. Sævar Þór Jónsson, lögmaður mannsins, sendi yfirlýsingu fyrir hönd hans en þar kemur fram að það sé „lögvarinn réttur hvers manns að tjá sig um niðurstöðu dómsmála“. Hann segir Stefán, betur þekktur sem Stebbi Jak, hafa gengið of langt í yfirlýsingu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær. „Í yfirlýsingunni er vegið að æru umbjóðanda míns, hann titlaður „gerandi“ og fjallað um persónulega heilsufarssögu hans og viðkvæm einkamálefni á opinberum vettvangi,“ segir Sævar. Hann mótmæli sérstaklega „þeirri atlögu að friðhelgi einkalífs“ mannsins sem felist í því að draga fram upplýsingar úr sjúkraskrám og öðru slíku. Þess háttar umfjöllun eigi ekki erindi í opinbera umræðu og að hún sé einungis til þess fallin að valda frekari skaða. Þá dragi hún upp „ranga og einhliða mynd af málavöxtum“. Í yfirlýsingu Stebba Jak í gær rekur hann þróun málsins sem hefur staðið yfir í tvö og hálft ár. Yfirlýsingin var titluð „Hættur í Dimmu“ en Stefán hætti í hljómsveitinni vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal og eiginkonu hans. Stefán segir þau hafa tekið afstöðu gegn honum í dómsmálinu vegna vinskapar við manninn sem sakaði hann um ofbeldi. „Í gær lauk tveggja og hálfs árs óvissutíma með skýrum sýknudómi vegna ákæru um líkamsárás. Ég hafði alltaf trú á að þetta færi vel, en léttirinn að fá þetta staðfest er ólýsanlegur,“ segir Stebbi í yfirlýsingunni sem birtist í gær. Hann segist í beinu framhaldi ætla að vísa til aðilans sem hafði fram að þessu verið titlaður „brotaþoli“ sem „gerandi“. Fjögurra vikna áfrýjunarfrestur Í yfirlýsingunni sem Sævar sendi frá sér er minnt á að niðurstaða héraðsdóms sé ekki endanleg þar sem áfrýjunarfrestur sé enn yfirstandandi. Ríkissaksóknari hefur fjórar vikur til að áfrýja niðurstöðum sakamála hjá héraðsdómi. „Að öðru leyti mun umbjóðandi minn ekki svara einstökum ásökunum eða fullyrðingum Stefáns á opinberum vettvangi, enda er það mat okkar að slíkur málflutningur dæmi sig sjálfur,“ segir Sævar loks í yfirlýsingunni. Ómar R. Valdimarsson, verjandi Stefáns, sagði Vísi í vikunni að hann ætti ekki von á því að málinu yrði áfrýjað. Yfirlýsinguna frá Sævari má sjá í heild sinni hér að neðan: Yfirlýsing vegna opinberrar umfjöllunar Stefáns Jakobssonar Undirritaður lögmaður sendir frá sér eftirfarandi athugasemd fyrir hönd umbjóðanda míns vegna yfirlýsingar sem Stefán Jakobsson birti á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.Það er lögvarinn réttur hvers manns að tjá sig um niðurstöðu dómsmála, en það er hins vegar með öllu óásættanlegt að nýta slíkan vettvang til að vega að persónu umbjóðanda míns með þeim hætti sem gert er. Í yfirlýsingunni er vegið að æru umbjóðanda míns, hann titlaður „gerandi“ og fjallað um persónulega heilsufarssögu hans og viðkvæm einkamálefni á opinberum vettvangi.Sérstaklega er mótmælt þeirri atlögu að friðhelgi einkalífs umbjóðanda míns sem felst í því að draga fram upplýsingar úr sjúkraskrám og persónulegum högum til að sverta ímynd hans. Slík umfjöllun á ekkert erindi í opinbera umræðu, er til þess fallin að valda frekari skaða og dregur upp ranga og einhliða mynd af málavöxtum.Rétt er að árétta að niðurstaða héraðsdóms er ekki endanleg þar sem áfrýjunarfrestur er enn yfirstandandi. Að öðru leyti mun umbjóðandi minn ekki svara einstökum ásökunum eða fullyrðingum Stefáns á opinberum vettvangi, enda er það mat okkar að slíkur málflutningur dæmi sig sjálfur.Lögð er rík áhersla á að fjölmiðlar sýni ábyrgð og gæti þess að gerast ekki málpípa fyrir ómálefnalegar dylgjur og opinbera útlistun á viðkvæmum persónuupplýsingum.Fyrir hönd umbjóðanda míns.Virðingarfyllst,Sævar Þór Jónsson hrl. Tónlist Dómsmál Tengdar fréttir Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson hefur verið ákærður fyrir líkamsárás en þingsetning var í málinu fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Stefán segist saklaus af þeim ásökunum sem á hann hafi verið bornar, en meint árás mun hafa átt sér stað í leigubíl í október árið 2023. 11. febrúar 2026 13:31 Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Stefán Jakobsson tónlistarmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag. 8. apríl 2026 15:48 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið. Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira
Sævar Þór Jónsson, lögmaður mannsins, sendi yfirlýsingu fyrir hönd hans en þar kemur fram að það sé „lögvarinn réttur hvers manns að tjá sig um niðurstöðu dómsmála“. Hann segir Stefán, betur þekktur sem Stebbi Jak, hafa gengið of langt í yfirlýsingu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær. „Í yfirlýsingunni er vegið að æru umbjóðanda míns, hann titlaður „gerandi“ og fjallað um persónulega heilsufarssögu hans og viðkvæm einkamálefni á opinberum vettvangi,“ segir Sævar. Hann mótmæli sérstaklega „þeirri atlögu að friðhelgi einkalífs“ mannsins sem felist í því að draga fram upplýsingar úr sjúkraskrám og öðru slíku. Þess háttar umfjöllun eigi ekki erindi í opinbera umræðu og að hún sé einungis til þess fallin að valda frekari skaða. Þá dragi hún upp „ranga og einhliða mynd af málavöxtum“. Í yfirlýsingu Stebba Jak í gær rekur hann þróun málsins sem hefur staðið yfir í tvö og hálft ár. Yfirlýsingin var titluð „Hættur í Dimmu“ en Stefán hætti í hljómsveitinni vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal og eiginkonu hans. Stefán segir þau hafa tekið afstöðu gegn honum í dómsmálinu vegna vinskapar við manninn sem sakaði hann um ofbeldi. „Í gær lauk tveggja og hálfs árs óvissutíma með skýrum sýknudómi vegna ákæru um líkamsárás. Ég hafði alltaf trú á að þetta færi vel, en léttirinn að fá þetta staðfest er ólýsanlegur,“ segir Stebbi í yfirlýsingunni sem birtist í gær. Hann segist í beinu framhaldi ætla að vísa til aðilans sem hafði fram að þessu verið titlaður „brotaþoli“ sem „gerandi“. Fjögurra vikna áfrýjunarfrestur Í yfirlýsingunni sem Sævar sendi frá sér er minnt á að niðurstaða héraðsdóms sé ekki endanleg þar sem áfrýjunarfrestur sé enn yfirstandandi. Ríkissaksóknari hefur fjórar vikur til að áfrýja niðurstöðum sakamála hjá héraðsdómi. „Að öðru leyti mun umbjóðandi minn ekki svara einstökum ásökunum eða fullyrðingum Stefáns á opinberum vettvangi, enda er það mat okkar að slíkur málflutningur dæmi sig sjálfur,“ segir Sævar loks í yfirlýsingunni. Ómar R. Valdimarsson, verjandi Stefáns, sagði Vísi í vikunni að hann ætti ekki von á því að málinu yrði áfrýjað. Yfirlýsinguna frá Sævari má sjá í heild sinni hér að neðan: Yfirlýsing vegna opinberrar umfjöllunar Stefáns Jakobssonar Undirritaður lögmaður sendir frá sér eftirfarandi athugasemd fyrir hönd umbjóðanda míns vegna yfirlýsingar sem Stefán Jakobsson birti á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.Það er lögvarinn réttur hvers manns að tjá sig um niðurstöðu dómsmála, en það er hins vegar með öllu óásættanlegt að nýta slíkan vettvang til að vega að persónu umbjóðanda míns með þeim hætti sem gert er. Í yfirlýsingunni er vegið að æru umbjóðanda míns, hann titlaður „gerandi“ og fjallað um persónulega heilsufarssögu hans og viðkvæm einkamálefni á opinberum vettvangi.Sérstaklega er mótmælt þeirri atlögu að friðhelgi einkalífs umbjóðanda míns sem felst í því að draga fram upplýsingar úr sjúkraskrám og persónulegum högum til að sverta ímynd hans. Slík umfjöllun á ekkert erindi í opinbera umræðu, er til þess fallin að valda frekari skaða og dregur upp ranga og einhliða mynd af málavöxtum.Rétt er að árétta að niðurstaða héraðsdóms er ekki endanleg þar sem áfrýjunarfrestur er enn yfirstandandi. Að öðru leyti mun umbjóðandi minn ekki svara einstökum ásökunum eða fullyrðingum Stefáns á opinberum vettvangi, enda er það mat okkar að slíkur málflutningur dæmi sig sjálfur.Lögð er rík áhersla á að fjölmiðlar sýni ábyrgð og gæti þess að gerast ekki málpípa fyrir ómálefnalegar dylgjur og opinbera útlistun á viðkvæmum persónuupplýsingum.Fyrir hönd umbjóðanda míns.Virðingarfyllst,Sævar Þór Jónsson hrl.
Yfirlýsing vegna opinberrar umfjöllunar Stefáns Jakobssonar Undirritaður lögmaður sendir frá sér eftirfarandi athugasemd fyrir hönd umbjóðanda míns vegna yfirlýsingar sem Stefán Jakobsson birti á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum.Það er lögvarinn réttur hvers manns að tjá sig um niðurstöðu dómsmála, en það er hins vegar með öllu óásættanlegt að nýta slíkan vettvang til að vega að persónu umbjóðanda míns með þeim hætti sem gert er. Í yfirlýsingunni er vegið að æru umbjóðanda míns, hann titlaður „gerandi“ og fjallað um persónulega heilsufarssögu hans og viðkvæm einkamálefni á opinberum vettvangi.Sérstaklega er mótmælt þeirri atlögu að friðhelgi einkalífs umbjóðanda míns sem felst í því að draga fram upplýsingar úr sjúkraskrám og persónulegum högum til að sverta ímynd hans. Slík umfjöllun á ekkert erindi í opinbera umræðu, er til þess fallin að valda frekari skaða og dregur upp ranga og einhliða mynd af málavöxtum.Rétt er að árétta að niðurstaða héraðsdóms er ekki endanleg þar sem áfrýjunarfrestur er enn yfirstandandi. Að öðru leyti mun umbjóðandi minn ekki svara einstökum ásökunum eða fullyrðingum Stefáns á opinberum vettvangi, enda er það mat okkar að slíkur málflutningur dæmi sig sjálfur.Lögð er rík áhersla á að fjölmiðlar sýni ábyrgð og gæti þess að gerast ekki málpípa fyrir ómálefnalegar dylgjur og opinbera útlistun á viðkvæmum persónuupplýsingum.Fyrir hönd umbjóðanda míns.Virðingarfyllst,Sævar Þór Jónsson hrl.
Tónlist Dómsmál Tengdar fréttir Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson hefur verið ákærður fyrir líkamsárás en þingsetning var í málinu fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Stefán segist saklaus af þeim ásökunum sem á hann hafi verið bornar, en meint árás mun hafa átt sér stað í leigubíl í október árið 2023. 11. febrúar 2026 13:31 Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Stefán Jakobsson tónlistarmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag. 8. apríl 2026 15:48 Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið. Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira
Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson hefur verið ákærður fyrir líkamsárás en þingsetning var í málinu fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Stefán segist saklaus af þeim ásökunum sem á hann hafi verið bornar, en meint árás mun hafa átt sér stað í leigubíl í október árið 2023. 11. febrúar 2026 13:31
Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Stefán Jakobsson tónlistarmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag. 8. apríl 2026 15:48