„Margir sem töldu þetta vera galin skipti fyrir rúmu ári síðan“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 10. apríl 2026 07:01 Viggó Kristjánsson sér ekki eftir því núna að hafa farið til Erlangen. Vísir/Vilhelm Viggó Kristjánsson afsannaði allar efasemdir sem fólk hafði um félagaskipti hans til Erlangen í fyrra. Honum hefur gengið vel hjá liðinu og hann hefði vel getað hugsað sér að vera þar áfram næstu ár en gat ekki sagt nei þegar stórliðið Flensburg vildi fá hann.
Eftir heilan áratug í atvinnumennsku og nokkuð mikið flakk milli félaga má segja að með félagskiptunum til Flensburg sé Viggó á leið upp í efstu hillu handboltans. „Flensburg er búið að vera á toppnum síðustu ár eða allavega alltaf meðal efstu liða. Þetta er eitt af bestu liðum Evrópu, engin spurning. Hjá Flensburg eru markmiðin alltaf að vinna alla titla, alveg eins og hjá Magdeburg, Berlin eða Kiel. Það er alls ekki óraunhæft, við verðum með gott lið og ég ætla að leggja mitt á vogarskálarnar.“ Viggó yfirgefur Erlangen sem ein af hetjum félagsins eftir að hafa bjargað liðinu frá falli í lokaleiknum í fyrra. Félagið er svo ánægt með hann að það hafnaði tilboði frá Flensburg og ákvað að fullnýta samninginn við Viggó út tímabilið 2027 áður en honum verður hleypt burt. Viggó er marka- og stoðsendingahæstur hjá Erlangen á þessu tímabili og liðið er ekki í sömu fallbaráttu og síðasta vor. erlangen En það voru ekki allir vissir um það þegar Viggó fór til fallbaráttuliðsins Erlangen á sínum tíma að þetta væri rétt skref. „Já það er rétt, það voru margir sem töldu þetta vera galin skipti fyrir rúmu ári síðan. Út á við leit það kannski þannig út en þeir tóku vel við mér hérna frá fyrsta degi og sem betur fer náði ég líka að bakka það upp með góðri frammistöðu á vellinum. Við höfum ekki haft yfir neinu að kvarta hérna og það kom alveg til greina að vera hérna næstu árin. En þegar tilboð frá Flensburg kom þá kitlaði það of mikið, að prófa það og sanna sig þar.“ Fjallað var um félagaskipti Viggós í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira