Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma stríðið í Íran, Líbanon og Gaza Einar Baldvin Árnason skrifar 9. apríl 2026 16:02 Það geisar stríð í Íran, Líbanon og Gaza. Bæði Ísraelsmenn og Bandaríkin ráðast viljandi á óbreytta borgara og innviði og það er ekki annað að sjá en að Ísraelsmenn ætli sér að fremja þjóðarmorð á sama skala í Líbanon og þeir gerðu á Gaza miðað við hversu snöggar og ofsafengnar árásir þeirra hafa verið. Donald Trump, Bandaríkjaforseti hótaði sjálfur öðru eins gagnvart írönsku þjóðinni fyrir tveimur dögum og þó ekkert hafi orðið úr hótuninni þá ber að taka hana alvarlega: Bandaríkin hafa nú þegar viljandi sprengt upp stúlknaskóla í Íran og ráðist harkalega að innviðum landsins og óbreyttum borgurum. Þetta eru grimmdarverk sem allir ættu að fordæma og það hafa raunar mörg evrópsk ríki gert. Forsætisráðherra Spánar hefur farið þar fremstur í flokki bæði í orði og á borði en hann ákvað m.a að leyfa Bandaríkjamönnum ekki að nota flugvelli sína til árása. Norðmenn hafa einnig fordæmt árásirnar og það hafa ítölsk stjórnvöld líka gert, ekki síst vegna árása Ísraelsmanna á kaþólska kirkju í Gaza og kaþólskt fólk og presta í Líbanon. Hans heilagleiki, Leó páfi XIV, hefur síðan talað af miklum krafti gegn stríðinu, raunar svo kröftulega að nýjustu fregnir herma að Bandaríkjastjórn hafi hótað honum og páfagarði beint ef hann léti ekki af gagnrýni sinni og styddi stríðsrekstur þeirra. Fregnir af þessum hótunum hafa farið eins og eldur í sinu um hinn kaþólska heim og leikmenn flykkja sér nú um páfann og friðarboðskap hans sem aldrei fyrr. Íslensk stjórnvöld hafa hinsvegar lítið sagt og ekkert gert. Yfirlýsingar Þorgerðar Katrínar, utanríkisráðherra, sem hreykir sér gjarnan af því að vera kaþólsk, hafa verið loðnar og veikburða og hún lagðist jafnvel svo lágt að kenna Íran um að efna til ófriðar rétt eftir að stríðið hófst. Kristrún Frostadóttir hefur síðan ekkert tjáð sig um málið. Það er furðuleg hegðun frá forsætisráðherra sem ég hefði haldið að kynni mögulega að hafa einhverja skoðun á því þegar litlar stelpur í Íran eru sprengdar í loft upp. Það má vera að það sé hluti af stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar að utanríkisstefna sé algjörlega í höndum Þorgerðar Katrínar. Það er amk ýmislegt sem bendir til þess. Það er þó óásættanlegt ef svo er; Íslendingar eiga skilið að heyra í forsætisráðherra sínum á óvissutímum og við eigum raunar líka skilið að eiga forsætisráðherra sem er nógu hugrakkur til að fordæma ódæðisverk þegar þau eru framin, alveg sama þó um bandamenn okkar sé að ræða. Það er reyndar alveg sérstaklega mikilvægt þegar bandamenn okkar eiga í hlut; Það er auðvelt og hættulaust að fordæma innrás Rússa í Úkraínu en að standa með saklausu fólki gegn grimmum Bandaríkjaforseta myndi krefjast hugrekkis og skipta raunverulegu máli. Ég veit ekki hversu hversu yfirþyrmandi illskuverkin þurfi að vera til þess að íslensk stjórnvöld láti í sér heyra. Mig grunar þau séu, því miður, svo aum, svo hrædd og leiðitöm Bandaríkjunum að ekkert fái vakið þau til góðra verka. Ég leyfi mér þó að vona að í þeim blundi eitthvað hugrekki og eitthvert siðferðisþrek. Ég vona að þau vakni til lífsins og fordæmi þetta stríð. Það væri ómetanlegt. Þar til þau gera það, hvet ég alla almenna borgara sem hafa andstyggð á þessu stríði að láta í sér heyra. Það skiptir miklu máli og hefur meiri áhrif en margir halda. Höfundur er listamaður og leikmaður í kaþólsku kirkjunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun