Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 16:02 Michael Carrick fór með liðið sitt til Dublin í stuttar æfingabúðir enda eru 24 dagar á milli leikja liðsins. getty/Ash Donelon Það er langt á milli leikja þessa dagana hjá Manchester United sem er ekki með í neinum bikarkeppnum lengur og var ekki heldur með í Evrópukeppni.
United spilaði síðast á móti Bournemouth 20. mars síðastliðinn en næsti leikur liðsins verður ekki fyrr en á móti Leeds United 13. apríl næstkomandi. Landsleikjahlé og bikarhlé sjá til þess að United-menn spila ekki keppnisleik í 24 daga. Let's get to work 👊💯 pic.twitter.com/GwiWcf3igs— Manchester United (@ManUtd) April 6, 2026 Knattspyrnustjórinn Michael Carrick ákvað því að fara í æfingaferð til Írlands til að halda liðinu við efnið í þessu langa fríi. Liðið fór á annan í páskum og kemur aftur til baka á fimmtudaginn. Bryan Mbeumo og Benjamin Sesko eru báðir með en þeir drógu sig báðir út úr landsliðsverkefnum vegna meiðsla. Patrick Dorgu hefur líka verið valinn í ferðahóp Man Utd fyrir æfingabúðir þeirra í Dublin í þessari viku, þar sem hann heldur áfram endurhæfingu sinni eftir meiðsli aftan í læri. Hollendingurinn Matthijs de Ligt er þó ekki í hópnum en hann hefur ekki spilað í ensku úrvalsdeildinni síðan í byrjun desember vegna bakmeiðsla. Lisandro Martinez er í hópnum eftir að hafa misst af síðustu fimm deildarleikjum vegna meiðsla en þeir Diogo Dalot og Tom Heaton ferðuðust ekki með vegna veikinda. Akademíuleikmennirnir Jim Thwaites, Yuel Helafu og Victor Musa eru þrír ungir leikmenn sem ferðast með liðinu í æfingabúðirnar. Á meðan er búist við að Shea Lacey, Chido Obi, Jack og Tyler Fletcher verði allir í U21 liði United sem spilar við Real Madrid á Old Trafford í kvöld. 🚨 Our 25-man squad for this week's intensive training camp in Dublin has been confirmed 📋🇮🇪— Manchester United (@ManUtd) April 6, 2026
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Klipptu Trump út af bikarmyndinni en Hvíta húsið bætti honum aftur inn Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Íslenski boltinn Mætti ekki á úrslitaleik HM til að mótmæla Fifa Sport Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Íslenski boltinn Hituðu upp fyrir heimsleikana í CrossFit með því að trúlofa sig Sport Gaf mömmu sinni gullmedalíuna: Gekk ófrísk og berfætt yfir eyðimörkina Fótbolti Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Enski boltinn Argentína nú þegar undir rannsókn Fótbolti Steig á liggjandi mótherja en ekkert dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Sjá meira