Samfélagsgróðurhús Árný Fjóla Ásmundsdóttir, Berglind Ósk Guttormsdóttir, Halldór Grétar Einarsson og Þorsteinn Hjartarson skrifa 7. apríl 2026 10:47 Gróðurhús og garðyrkja eru stór hluti af sögu og menningu Hveragerðis. Nú þegar sú starfsemi er á undanhaldi þarf að huga að því hvernig hægt sé halda þessari menningararfleifð á lofti og láta heilsubæinn blómstra. Í hugmyndavinnu S-listans hefur komið fram frábær hugmynd um að stofna samfélagsgróðurhús sem gæti verið samkomustaður fyrir íbúa á öllum aldri. Þar skapast tækifæri til ræktunar, fræðslu, sköpunar og viðburðahalds af ýmsu tagi. Gott dæmi um samfélagshús er Grønttorvethúsið í Valby í Danmörku en það hús býður upp á fjölnota rými fyrir íbúa í hjarta hverfisins. Nokkur samfélagsgróðurhús eru svo í næsta nágrenni. Ekki er um hefðbundinn rekstur sveitarfélags að ræða heldur lifandi samfélag íbúanna sem bera sameiginlega ábyrgð enda eru þeir sammála um að verkefnið stuðli að vellíðan þeirra og samkennd. Frambjóðendur S-listans vilja gjarnan skoða hvort hægt sé að koma samfélagsgróðurhúsi á laggirnar í Hveragerði. Þar gæti verið ræktunarrými fyrir íbúa (grænmeti, krydd, blóm o.fl), samkomustaður fyrir fjölskyldur, fræðsla (grunnskóli, leikskólar, námskeið o.fl.), miðstöð fyrir viðburði og listsköpun. Ekki er ólíklegt að einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki hefðu áhuga á að taka þátt í uppbyggingu og rekstri samfélagsgróðurhúss með bæjarfélaginu. Í því sambandi mætti skoða að stofna óhagnaðardrifið félag í kringum starfsemina. Þá gæti samfélagsgróðurhús auðveldað vinnu við geðrækt í litlum hópum og virkniverkefni fyrir bæði börn og fullorðna sem glíma við kvíða og félagslega einangrun. Í því sambandi ætti heilbrigðis- og velferðarþjónusta einnig að vera hluti af starfsemi hússins. Hvernig er hægt að koma samfélagsgróðurhúsi á laggirnar? Þegar horft er til næstu ára væri gaman að koma upp alvöru samfélagshúsi hér í bæ og samfélagsgróðurhúsum í tengslum við það. Sé hins vegar tekið mið af fjármögnun og stöðu framkvæmda á vegum Hveragerðisbæjar kann einhver að benda réttilega á að ekki sé fjárhagslegt svigrúm til að byggja upp hús sem er sambærilegt við samfélagshúsið í Valby, en samfélagsgróðurhús gæti ef til vill verið raunhæfur kostur. Í því sambandi mætti skoða til að byrja með hvort ekki sé hægt að kaupa notað gróðurhús erlendis frá og/eða að taka gróðurhús á leigu sem er í litlum eða engum rekstri. Frambjóðendur S-listans eru tilbúnir til að skoða málið vel nái þeir góðri kosningu 16. maí næstkomandi, enda vantar samkomustað í Hveragerði sem gæfi tækifæri til að rækta saman, skapa, læra og njóta. Þá spillir ekki fyrir að verkefnið fellur vel að megin leiðarljósum í nýlegri skipulagsgreinargerð með aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037: Skapandi Hveragerði, sjálfbært samfélag með náttúruna í fyrirrúmi. Heilsueflandi Hveragerði, samfélag þar sem lögð er áhersla á ró, vellíðan, heilsueflingu, góða þjónustu og fjölskylduvænt umhverfi. Blómstrandi Hveragerði, með blómlegu atvinnulífi og fjölbreyttum atvinnutækifærum sem byggja á auðlindum og sérkennum bæjarins, svo sem á sviði ferðaþjónustu, græns iðnaðar og tækifæra í nýsköpun innan þessara sviða. Samfélagsgróðurhús er í raun lítið verkefni en á sama tíma stórt fyrir íbúana því það gæti styrkt félagsleg tengsl þeirra og vellíðan sem og ímynd Hveragerðis sem blómstrandi heilsubæjar. Höfundar skipa sæti á S-listanum í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar