Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar 3. apríl 2026 15:02 Á degi sem minnir á þjáningu, fórn og von er rétt að staldra við og spyrja erfiðra spurninga. Ekki bara um eigið líf, heldur líka um hvernig við stöndum vörð um þau börn og það unga fólk sem getur ekki borið sína baráttu eitt. Á þessum degi vil ég hvetja sem flesta, og sérstaklega þau sem starfa að málefnum barna og ungs fólks með fjölþættan vanda, til að staldra við og líta í eigin barm. * Er ég raunverulega að þjóna börnum og geri það heiðarlega? * Er ég raunverulega að setja málefni þeirra framar mínum starfsframa og forréttindum? * Get ég gert betur? * Er ég hundrað prósent heiðarlegur í störfum mínum? Þetta eru ekki þægilegar spurningar. En föstudagurinn langi er heldur ekki þægilegur dagur. Hann á ekki að renna framhjá okkur eins og enn einn frídagurinn. Hann á að kalla fram íhugun, auðmýkt og ábyrgð. Og kannski þurfum við sem samfélag meira en nokkru sinni að staldra við og spyrja okkur hvort við séum raunverulega að standa með þeim sem minna mega sín. Börnin og unga fólkið okkar sem eru týnd, brotin eða þjást þurfa á okkur að halda. Ekki seinna. Núna. Páskarnir hafa ekki alltaf þýtt hið sama fyrir mig Fyrir rúmum tuttugu árum einkenndust þeir meira af vinnu, keyrslu og djammi en kyrrð, þakklæti og íhugun. Síðan komu ár þar sem ég var einfaldlega týndur. Ár þar sem ég var sífellt að reyna að þóknast öðrum, hlaupa hraðar, sanna mig meira og finna eitthvað fyrir utan mig sem gat fyllt upp í tómið. Á slíkum tíma skipta hátíðardagar mann litlu máli. Ekki af því að þeir hafi enga merkingu, heldur af því að maður er búinn að týna sjálfum sér. Kannski er það einmitt þess vegna sem páskarnir snerta mig öðruvísi í dag. Ekki bara sem hefð eða frí, heldur sem áminning. Áminning um að maður þarf stundum að staldra við. Horfa inn á við. Þagna aðeins. Hugsa um það sem raunverulega skiptir máli. Saga Jesú hefur verið mér slík áminning. Ekki sem einhver samanburður, alls ekki, heldur sem hvatning. Hvatning til að gefast ekki upp. Hvatning til að horfast í augu við sársaukann í stað þess að hlaupa frá honum. Hvatning til að muna að það er engin upprisa án kross, engin dýpt án fórnar og engin raunveruleg breyting án uppgjörs. Það er engin upprisa án uppgjörs Föstudagurinn langi er ekki þægileg saga. Og á vissan hátt á hann ekki að vera það. Hann minnir okkur á þjáningu, óréttlæti, fórn og kærleika sem fór alla leið. Hann minnir okkur á að Jesús bar þjáningu og fórn sem hann átti ekki skilið að bera. Fyrir mig er ekki nóg að horfa á þá sögu sem eitthvað sem gerðist einu sinni. Spurningin er hvað við lærum af henni. Hvernig við lifum í ljósi hennar. Hvernig við tökum ábyrgð á eigin lífi, eigin brestum og eigin leið. Því samfélagið okkar er alltof oft fast í einhverju endalausu kapphlaupi. Við hlaupum, berum okkur saman, leitum að viðurkenningu, eltum falskar hugmyndir um hamingju og kennum svo öðrum um þegar eitthvað brotnar innra með okkur. Við viljum helst forðast skuggann, loka á sársaukann og halda í ímyndina. En þannig finnur maður ekki frið. Þannig finnur maður bara meira tómarúm. Mitt eigið ferðalag niður og upp aftur Þegar ég fékk taugaáfallið 2023 hófst mitt erfiðasta ferðalag. Þá byrjaði raunverulegt uppgjör. Ég þurfti að berjast við eigin fordóma, eigin skugga og gamla verki sem höfðu fengið að liggja of lengi í myrkrinu. Ég þurfti að losa beinagrindur úr mínum eigin helli. Það var hvorki fallegt né auðvelt. En það var nauðsynlegt. Og stundum er það þannig að maður þarf fyrst að fara alla leið niður til að hætta loksins að ljúga að sjálfum sér. Í dag lít ég ekki á það tímabil sem bara hrun. Ég lít líka á það sem upphaf. Upphaf að heiðarlegra lífi. Upphaf að dýpri þakklæti. Upphaf að lífi þar sem ég er ekki lengur að reyna að vera það sem aðrir vilja sjá, heldur reyni að vera ég sjálfur. Ekki fullkominn. Ekki gallalaus. Bara heiðarlegri, vakandi og meðvitaðri. Að gefa af sér er leið út úr tóminu Og það er kannski það sem páskarnir minna mig mest á í dag. Að besta svarið við fórn Jesú er ekki falleg orð eða heilög ímynd. Heldur að reyna af alvöru að vera betri maður. Að vera heiðarlegur við sjálfan sig. Að hætta að fela sig. Að bæta fyrir bresti sína þar sem það er hægt. Að gefa af sér. Að elska meira. Að þjóna frekar en að monta sig. Að hætta að dansa við eigin púka og kalla það frelsi. Ég finn meiri tilgang í því í dag að hjálpa öðrum en að elta tóma ímynd. Að fá að markþjálfa fólk sem er að elta drauma sína eða leita að tilgangi er forréttindi. Að fá að vinna með Jóni K. Jacobsen, Nonna Lobo, í Týndu Strákunum hefur líka gefið mér dýpri merkingu en margt það sem áður virtist stórt. Þar er eitthvað raunverulegt. Þar er þjónusta. Þar er barátta sem snýst ekki um egó heldur um að leggja eitthvað af mörkum. Ég held í dag að maður öðlist mest þegar maður hættir að grípa og byrjar að gefa. Þegar maður hættir að spyrja hvað heimurinn eigi að færa sér og fer að spyrja hvað hann geti sjálfur lagt af mörkum. Því með því að gefa af sér öðlast maður oft það sem maður þarfnast mest. Ekki endilega það sem maður hélt að hann þyrfti, heldur það sem skiptir raunverulega máli. Týndu börnin okkar þurfa á okkur að halda Kannski er það þess vegna sem páskarnir skipta mig meira máli nú en áður. Þeir minna mig á að vonin fæðist ekki í yfirborðinu. Hún fæðist oft eftir sársauka, eftir uppgjör, eftir þögn og tár. En hún fæðist samt. Og þess vegna vil ég í dag líka höfða til samvisku þeirra sem starfa að málefnum barna og ungs fólks. Ekki til að fordæma alla. Heldur til að minna á ábyrgðina sem fylgir því að vinna með viðkvæmustu sálum samfélagsins. Sá sem þjónar börnum þarf að gera það af heilindum. Ekki hálfum huga. Ekki með eigin stöðu í fyrirrúmi. Ekki með eigin þægindi ofar sannleikanum. Við þurfum fleiri sem þora að líta í eigin barm.Við þurfum fleiri sem þora að spyrja hvort þeir geti gert betur.Við þurfum fleiri sem setja börnin raunverulega í fyrsta sæti. Og við þurfum líka að standa saman. Ekki bara í orði, heldur í verki. Það er ekki veikleiki að styðja við fólk sem þarf á okkur að halda. Það er styrkur. Það er ekki tap að gefa af sér. Það er einmitt þar sem margt það besta í lífinu kviknar. Þar verður þjónustan að einhverju raunverulegu. Þar verður kærleikurinn meira en orð. Týndu börnin okkar þurfa á okkur að halda. Þau þurfa á heiðarlegu fólki að halda.Þau þurfa á hugrökku fólki að halda.Þau þurfa á samfélagi að halda sem hættir að horfa undan. Og það er nóg ástæða til að staldra við, þakka og halda áfram. Höfundur er annar af Týndu Strákunum sem berjast fyrir bættu kerfi fyrir börn með fjölþættan vanda, og ungt fólk sem fellur á milil kerfa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Páskar Börn og uppeldi Mest lesið Halldór 06.06.26. Halldór Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Skoðun Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættu að skipta þér af! Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun Sumarið er tíminn…. en ekki fyrir öll börn Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Skoðun Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Forsætisráðherra talar um virðingu, en hvað með starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins? Ásmundur E. Þorkelsson,Sigrún Guðmundsdóttir,Hörður Þorsteinsson Skoðun
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun