Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Kristján Már Unnarsson skrifar 2. apríl 2026 07:47 Ásrún Jóhannesdóttir er yfirmaður í aðgerðastjórnstöð flugrekstrarsviðs Air Atlanta. Egill Aðalsteinsson Í skrifstofubyggingu í Smárahverfi í Kópavogi er stjórnstöð þakin svo mörgum tölvuskjám að minnir á geimferðamiðstöð. Stöðin á það sammerkt með NASA að þar sitja einnig sérfræðingar við skjái að fylgjast með að allt gangi vel í ferðum á fjarlægum slóðum.
Við erum að tala um hjarta flugfélagsins Air Atlanta. Í stjórnstöð situr hópur fólks yfir tölvu- og myndavélaskjám en fjallað er um hana í kvöldfréttum Sýnar og í þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+. Stjórnstöðin er í höfuðstöðvum Air Atlanta í KópavogiEgill Aðalsteinsson „Hérna erum við í aðgerðastjórnstöð flugrekstrarsviðs sem er hérna í Kópavogi. Hérna erum við með vakt allan sólarhringinn alla daga vikunnar,“ segir Ásrún Jóhannesdóttir, yfirmaður í stjórnstöðinni hér í tveggja mínútna frétt Sýnar: Stjórnstöðin skiptist í mismunandi deildir sem hver hefur sitt hlutverk. Þar er til dæmis áhafnavakt, sem tryggir að flugmenn félagsins fljúgi innan leyfilegra marka og fái lögbundna hvíld. Næst sýnir Ásrún okkur flugumsjónina. „Þetta er fólkið okkar sem er að plana flugin. Þau þurfa að reikna hversu mikið eldsneyti þarf að vera um borð. Hversu mikla frakt við megum vera með. Þau eru að fylgjast með veðri og vindum og fylgjast með fluginu frá því þegar það fer í loftið og þangað til það lendir.“ Hjalti Sigurðarson flugumsjónarmaður.Egill Aðalsteinsson „Hérna erum við með sex vélar sem eru í loftinu,“ segir Hjalti Sigurðarson flugumsjónarmaður og bendir okkur síðan á alls þrettán Atlanta-flugvélar staðsettar á mismunandi stöðum á jörðinni. Hér má sjá átta mínútna myndskeið úr þætti Flugþjóðarinnar um Air Atlanta: Þátturinn um Atlanta-flugfélagið er sá átjándi í þáttaröðinni. Áskrifendur geta séð þáttinn í heild sem og alla þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Air Atlanta Fréttir af flugi Kópavogur Tengdar fréttir Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Íslendingar vita kannski ekki mikið um Atlanta. Þeir eru svo ósýnilegir í íslensku viðskiptalífi. Þar er bara yfirbyggingin og skrifstofan. En öll starfsemin er náttúrlega annarsstaðar.“ 29. mars 2026 07:47 Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Risaþotum af gerðinni Boeing 777 í flota Air Atlanta fjölgar upp í sex á árinu en þær eru núna stærstu flugvélar heims í fjöldaframleiðslu. Svo stórar eru þær að um borð er að finna leyniklefa uppi í rjáfri fyrir áhafnir sem farþegar vita almennt ekki um. 26. mars 2026 07:47 Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims. 1. mars 2026 07:47 Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu „Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. 10. október 2024 10:50 Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Sjá meira
Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Íslendingar vita kannski ekki mikið um Atlanta. Þeir eru svo ósýnilegir í íslensku viðskiptalífi. Þar er bara yfirbyggingin og skrifstofan. En öll starfsemin er náttúrlega annarsstaðar.“ 29. mars 2026 07:47
Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Risaþotum af gerðinni Boeing 777 í flota Air Atlanta fjölgar upp í sex á árinu en þær eru núna stærstu flugvélar heims í fjöldaframleiðslu. Svo stórar eru þær að um borð er að finna leyniklefa uppi í rjáfri fyrir áhafnir sem farþegar vita almennt ekki um. 26. mars 2026 07:47
Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Ákvörðun Air Atlanta árið 1993 um að taka Boeing 747-þotur í rekstur þykir einhver sú djarfasta í sögu íslenskra flugmála. Júmbó-þoturnar voru á þeim tíma stærstu og dýrustu farþegaþotur heims. 1. mars 2026 07:47
Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu „Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. 10. október 2024 10:50