Segir NATO „pappírstígur“ og íhugar að hætta Samúel Karl Ólason skrifar 1. apríl 2026 10:53 Donald Trump hefur ítrekað verið harðorður í garð bandalagsríkja Bandaríkjanna í NATO. AP/Alex Brandon Donald Trump segist íhuga það alvarlega að Bandaríkin hætti í Atlantshafsbandalaginu. Trump hefur lengi talað gegn bandalaginu og hefur hann virst reiður út í bandalagsríki Bandaríkjanna fyrir að aðstoða ekki við árásir á Íran og koma ekki askvaðandi þegar hann bað um aðstoð við að opna Hormússund aftur.
Í viðtali við Telegraph (áskriftarvefur) segir Trump að bandalagið sé „pappírstígur“ og að hann hafi aldrei litið bandalagið jákvæðum augum. Vert er að taka fram að Trump hefur ekki vald til að segja Bandaríkin úr NATO án aðkomu þingsins. Sem forseti Bandaríkjanna stýrir hann þó herafla Bandaríkjanna og gæti þannig komið í veg fyrir að bandarískir hermenn yrðu sendir til að aðstoða ríki NATO, ef fimmtá ákvæði stofnsáttmála bandalagsins verður virkjaður. Trump sagði að það að bandalagsríki Bandaríkjanna hefðu ekki komið honum til aðstoðar varðandi Íran hefði verið ótrúlegt. Hann hefði ekki farið fram á mikið og sagði að ríkin hefðu í raun átt að aðstoða sjálfkrafa. „Við höfum gert það, varðandi Úkraínu. Úkraína var ekki okkar vandamál. Þetta var próf, og við vorum þar fyrir þá og við hefðum alltaf verið þar fyrir þá. Þeir voru ekki þar fyrir okkur,“ sagði Trump. Sjá einnig: Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Þá beindi Trump spjótum sínum sérstaklega að Bretlandi og Keir Starmer, forsætisráðherra, fyrir að hafa ekki aðstoðað við árásirnar á Íran. Þá gaf hann í skyn að breski sjóherinn væri ekki góður og að flugmóðurskip Breta virkuðu ekki. „Þið eigið ekki einu sinni sjóher. Þið eruð of gamlir og höfðuð flugmóðurskip sem virkuðu ekki.“ Í gærkvöldi sagði Trump við blaðamenn að Bandaríkjamenn myndu ekkert koma að því að opna Hormússund aftur. Það yrði að vera á ábyrgð Frakklands og annarra ríkja sem nota sundið. Þvær hendur sínar af eigin vandræðum Donald Trump hóf stríðið gegn Íran án nokkurs samráðs við þau ríki sem hann gagnrýnir nú harðlega fyrir að koma honum ekki til aðstoðar. Eftir að árásirnar á Íran hófust lokuðu Íranir fyrir svo gott sem allar skipasiglingar um Hormússund en þar um fer um fimmtungur af olíu heimsins, mikið af jarðgasi, áburði og öðrum nauðsynjum fyrir hagkerfi heimsins. Bensínverð hefur hækkað verulega á heimsvísu og útlit er fyrir að áhrifin gætu orðið mikil og langvarandi. Trump hefur gefið til kynna að Bandaríkin muni ekki með neinum hætti koma að því að tryggja siglingar um sundið á nýjan leik. Þess í stað hefur hann sagt öðrum ríkjum að gera það. Í gær sagði hann að umrædd ríki gætu sótt sína eigin olíu til Mið-Austurlanda. Sýna smá kjark og opnað Hormússund aftur. Trump hefur margsinnis haldið því fram frá því hann tók aftur við embætti að bandalagsríki Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu geri lítið sem ekkert fyrir Bandaríkin og hefur hann á undanförnum vikum gefið til kynna að framtíð NATO sé í húfi, komi þessi ríki ekki Bandaríkjamönnum til aðstoðar við að opna sundið og halda því opnu. Bandaríkjamenn vörðu nokkrum vikum í undirbúning fyrir árásirnar á Íran en Trump hefur krafist þess að ríki í Evrópu og bandalagsríki í Asíu sendi herskip og herafla á svæðið án undirbúnings, til að opna Hormússund aftur. Er nánast hættur stuðningi við Úkraínu Frá því Donald Trump settist aftur að í Hvíta húsinu hefur ríkisstjórn hans ekki samþykkt neina nýja umfangsmikla aðstoðarpakka handa Úkraínumönnum. Svo gott sem eina aðstoðin í formi hergagna eða peninga sem hefur borist þaðan er aðstoð sem samþykkt var í forsetatíð Joes Biden. Að undanskildum fjögur hundruð milljónum dala á ári næstu tvö ár, sem Trump samþykkti í lok síðasta árs. Þeim peningum á að verja í bandarísk vopn og hergögn sem send verða til Úkraínu. Þá hefur hann selt ríkjum Evrópu bandarísk hergögn, aðallega flugskeyti fyrir loftvarnarkerfi, sem send hafa verið til Úkraínu.
Bandaríkin Donald Trump NATO Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bretland Frakkland Hernaður Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira